07.08.1914
Efri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)
23. mál, tollalög
Karl Einarsson:
Jeg get að vissu leyti tekið undir með hv. framsm. (B. Þ.). að þetta frv. er eitt af hinum merkari frv., , sem þetta þing hefir haft til meðferðar, það er að segja, eins og það var, þegar það fór hjeðan úr deildinni. Um meðferð hv. Nd. á frv. er það að segja, að 1. gr. er ef til vill betur orðuð eins og Nd. hefir gengið frá henni. En 2. gr., sem Nd. hefir bætt við, álít jeg óhæfilega og er jeg henni algjörlega mótfallinn. Jeg álít meira að segja ógjörlegt að samþykkja frv., ef sú hrein er látin haldast. Jeg skil ekki, að löggjafarvaldið geti verið þekt fyrir að heimila hverjum póstmanni að opna hverja böggulsendingu, sem honum sýnist. Í þeirri póstafgreiðslu, sem jeg þekki best, fást 4 til 5 verslunarmenn við afgreiðslu. En lögreglustjórinn býr svo að segja í næsta húsi, og er auðvitað alt af hægt að gjöra honum aðvart, ef eitthvað þykir grunsamlegt. En samkvæmt frv. ætti hver þeirra, sem við afgreiðsluna fæst í það og það skifti, að hafa leyfi til þess að opna hvern þann böggul, sem hann langaði til að hnýsast i. En mjer virðist, að þeir sem senda sendingar með pósti, hafi rjett til að vera verndaðir gegn slíku. Ákvæðið er alt of yfirgripsmikið. Þar sem lögreglustjóri er við hendina, á enginn að hafa heimild til þess að opna böggulsendingar nema hinn, en annars á póstafgreiðslumaðurinn einn að hafa heimild til þess. 3. gr. er óþörf og út í loftið og 4. gr. er sömul, óþörf. — Jeg vona, að hv. deild felli 2. gr. burt með öllu, og vil jeg mælast til, að málið verði tekið út af dagskrá, svo að hægt verði að koma fram með brtt.