07.08.1914
Efri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (1742)

23. mál, tollalög

Hákon Kristófersson:

Jeg vil gjöra stutta grein fyrir atkvæði minn. Jeg greiddi atkv. með frv. seinast, er það var hjer í deildinni, en nú verð jeg að taka undir með hv. þm. Vestm. (K. E.), að mjer finst. það orðið óhæfilegt, eins og hv. Nd, hefir gengið frá því. Það er sannarlega oflangt gengið, að heimila ábyrgðarlausum mönnum að rifa upp böggla. Jeg gæti gengið að því, að póstafgreiðslumönnum sjálfum væri þetta heimilt, en ekki þjónum þeirra, sem oft afgreiða póst. Verði svo langt gengið, að öllum, sem fást við póstafgreiðslu, sje leyfilegt að rífa upp böggla, þá get jeg ekki stutt þetta frv. með atkvæði mínu.

Jeg verð að játa, að jeg er talsvert hissa á því, sem nú er farið að slá fram hjer í deildinni, að svo sje komið í eindaga, að málin verði að ganga fram, hvort sem vel eða illa er gengið frá þeim. Jeg verð að líta öðruvísi á þetta mál heldur en meiri hluti nefndarinnar, því mjer sýnist greinin ganga í aðra átt en þá, að hún sje til bóta. Jeg vildi leggja það til að málinu væri frestað, en að öðrum kosti býst jeg við, að jeg verði að greiða atkvæði á móti frumvarpinu.