28.07.1914
Efri deild: 20. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

71. mál, stofnun kennarastóls í klassískum fræðum

Guðmundur Björnsson :

Jeg ætla að gjöra grein fyrir skoðun minni á þessu máli, áður en það fer alfarið út úr deildinni.

Þær eru örfáar þær fræðigreinar, sem nú eru kendar hjer í Háskólanum. Þar vantar enn kenslu í mörgum nytsömustu og merkustu fræðigreinum nútíðarmanna. Eigi að bæta við nýjum kenslugreinum, þá verður að íhuga hver nauðsynlegust sje; ekkert vit í að breyta til eða bæta við af handahófi. En þetta nýmæli er eindæma handahófsverk — einblínt á grísku og latínu, eins og það eitt vanti, eða sá skorturinn sje langbagalegastur.

Mjer er nú reyndar sagt, hæstv. forseti, að þetta frumvarp sje eitt þeirra, sem á sjer sigurinn vísan; hvað sem hver segir; því ekki til neins að malda í móinn. Þótt eitthvað væri hæft í þessu, kann jeg samt ekki við, að sagt verði um Alþingi 1914, , að enginn hafi sjeð sólina fyrir grísku og latínu. Eigi þetta fram að ganga, þá finst mjer þessi saklausa einfeldni enn leiðinlegri afspurnar fyrir þingið heldur en hitt, að það gjöri þetta glappaskot vísvitandi. því að enginn skal ætla, að það geti leynst til lengdar. Svo augljóst er það.

Hjer í Háskólanum er ekki kend veraldarsaga, ekki landafræði, ekki jarðfræði, ekki stærðfræði, ekki efnafræði (nema læknaefnum lítilsháttar), ekki grasafræði, ekki dýra fræði, ekki lögum samkvæmt enska, franska eða þýska, ekki svo mikið sem að nútíðar íslenska sje kend, heldur fornmálið eitt; ekki heldur nein mannvirkjafræði, þótt þau sjeu alstaðar orðin brýnasta nauðsyn nú á dögum. Til að nema öll þessi fræði, og mörg fleiri, verða Íslendingar enn sem fyr að ganga í erlenda háskóla. Þar eru þau alstaðar kend — nema okkar ástkæra, en vanrækta móðurmál; það er ekki numið í neinum háskóla, bara gamla málið, mál forfeðra okkar. En lifandi íslenskan, sem mæður okkar kendu okkur að tala jeg skil þetta ekki, þetta háttalag okkar, að meta það, sem dautt er, meira en það, sem lifir, og vita þó um íslenskuna, að öll okkar forna mentafrægð er einmitt því að bakka. að þá möttu bestu menn hjer á landi sitt hversdagsmál, sitt móðurmál fram yfir alheimsmálið, latínuna, unnu því svo heitt, að þeir einir allra fræðimanna í þá daga, að heita má, skráðu öll fræði sín á móðurmáli sínu en ekki á latínu.

En jeg má til að snúa að aðalefninu og aðalefnið á að vera að íhuga, hvort latína og gríska skuli ganga svona, eins og að sjálfsögðu, ómótmælt fyrir öllum öðrum fræðum, sem enn eru ekki kend hjer í Háskólanum.

Þá er fyrst að líta á röksemdir frumvarpsmanna, í áskorun stúdentafjelagsins og svo í nefndarálitinu. Þeir segja, að latínan hafi hjer verið grundvöllur alls skólanáms frá því að kristni kom hingað til lands. Jeg segi, að íslenskan hefir verið, er og verður grundvöllur allra íslenskra bókmenta. Hefðu ekki forfeður okkar metið hana miklu meira en latínu, þá væri íslensk tunga og íslenskt þjóðerni fyrir löngu steindautt — eða alt hjer nú í sömu eymdinni og á Færeyjum.

Það er sagt, að flest nýju málin sjeu gegnofin af grísku- og latínuleifum. Það er nú svo.

Síðan jeg fór úr skóla, fyrir 27 árum, hefi jeg aldrei opnað gríska bók og gleymt allri minni grísku, því litla, sem jeg lærði; jeg man enn talsvert í latínu og hefi oft haft dullítið gagn af henni, en aldrei sjeð mjer þörf á að auka þá kunnáttu. Hins vegar hefi jeg orðið að auka stórum kunnáttu mína í ensku, þýsku og frönsku, en allra mest þó í íslensku. Jeg hefi líka gluggað í mjög margskonar fræði; hefi varið til þess þeim tíma, sem aðrir hafa varið til að lesa lygasögur, — jeg ætlaði að segja skáldsögur. Nú, nú! Jeg hefi margsinnis um það hugsað, og altaf fundist grískunám mitt óþarft og aldrei haft neitt gagn af því, sem nefnandi sje. Latínan hefir stundum komið mjer að liði, en þó hefi jeg fundið, að þar þarf ekki mikils við nú á dögum; vafalaust nóg það, sem kent er nú hjer í Mentaskólanum.

Þeir, sem lifa úti í ys og þys mannlífsins, finna það best, að nýju heimsmálin eru ómissandi, en þessu gömlu, dauðu mál orðin rjett einskis nýt; þau eru nú á dögum dýr ánægja, of dýr fyrir fátæklingana. Og þeir, sem enn halda dauðahaldi í þá dauðans ánægju — það eru víst aðallega þeir mörgu menn, sem lifa alla æfi innan dyra, eða eru svo efnum búnir, að dýrmæti tímans tekur ekki til þeirra.

Þá er nú annað. Latínan er svo oft talin skýrust og mest mentandi allra mála. Það er ein gamla upptuggan, ein af þeim mörgu, gömlu, rotnu jórturkreddum. Jeg þori að segja, að jeg hefi aldrei lesið neitt á latínu á við það snildarlegasta t. d. í frönskum bókmentum eða okkar bestu íslensku ritum. Allir hafa tekið hjer með fögnuði aðkomukennurum í nýju málunum, frönsku og nú þýsku, og sú kensla verið Háskólanum til sæmdar og mörgum til stórgagns. Væri ekki nær að lögfesta þá kenslu en þetta þarflitla forneskjuprjál? Vissulega væri það nær. En þó er hver sjálfum sjer næstur, og það tekur út yfir, ef dauð grískan og latínan á að halda innreið sína í Háskólann á undan lifandi: móðurmáli þjóðarinnar. Enginn skólanámsskortur hefir mætt mig eins og fákunnátta mín í móðurmáli mínu, þegar til kom fyrir mjer að þurfa á allri þess getu að halda í ræðu og riti.

Þá er það ein gömul bábiljan, að ekkert sje á við grísku og latínu til að skerpa. greind og gáfur unglinganna. Jeg hefi margrannsakað huga minn, fyr og síðar og aldrei fundið þess merki, að latínan hafi verið mjer neinn greindargróði. Jeg hefi fundið, að íslenskan hefir allra mála mest liðkað greind mína og magnað hugvit mitt. Þessi lofdýrð um latínuna er gömul kórvilla, komin til af því, að hún hefir um langan aldur verið aðalnámsgreinin í Mentaskólanum, mest og best kend og í mestu afhaldi.

Það er alt önnur fræðigrein, sem jeg: finn betur og betur, að rjeði mestu um þroska minn á námsárunum, og hún hefir líka, að mjer finst, verið mjer til mestrar hamingju á lífsleiðinni.

Háttv. 1. kgk. (E. B.), — jeg veit, að þjer munuð skilja mig, en veit ekki um aðra hjer. Það er talnafræðin, sem jeg: á við; henni unni jeg í æsku mest allra fræða. Tölvísin, hún er óefað skynseminnar skærasta leiðarstjarna. Öll þau ótal mörgu og margflóknu vísindi, sem lúta. að leyndardómum náttúrunnar — öll eru þau gegnofin af tölvísi; hún er sálin, í þeim öllum, hún er það eina í öllum mannlegum fræðum, sem kalla má eilíft og óumbreytanlegt; hún er kjólfestan í nútímans allra nytsömustu og djúpsæustu fræðigreinum; hún er sálin í öllum atvinnufræðum. Flestar þessar háskalegu hugsunarvillur í hversdags sökum og þjóðmálum, sem alstaðar eru alkunnar, koma af því, að menn eru yfirleit „ónýtir í reikningi“, eins og sagt er í skóla; hafa aldrei eygt eða skilið og lotið með lotningu tölvísinnar einföldu, eilífu, háleitu og óskeikulu lögmálum; flestar „vitleysur“ og „glappaskot“ eru blátt áfram barnalegar reikningsvillur. Og hún er nú líka, tölvísin, alstaðar meðal mentaðra þjóða á hraðri leið, það veit jeg, í skólunum, háum og lágum, upp í hásæti vísindanna. Mjer er sem jeg heyri, hvað sagt verður á Alþingi eftir svo sem 100 ár um þetta tiltæki núna, ef af því verður, að ráða háskóladósent til að vaka yfir líki latínunnar og grískunnar, en láta háskólann vera alveg „ónýtan í reikningi“, og eiga þó ágætan íslenskan fræðimann, Ólaf Daníelsson, í þeim höfuðvísindum. En meðal annara orða: Hvar er sá íslenskur grískumaður, sem á að prýða þetta nýja embætti?

Þeir segja, grískuvinirnir, að Garðstyrkurinn í Höfn muni vera á förum, og „verði þá vorum löndum of dýrt nám erlendis“, og muni af því leiða, að skortur verði á latínumönnum til kenslu í mentaskólanum, og varla fást hæfir háskólakennarar í guðfræði, ef hjer er enginn „klassískur dósent“! Í þessum ummælum fer athugaleysið upp úr öllu valdi; þetta einblín á dauðu málin. Fari Garðstyrkurinn og hætti Íslendingar að fara utan til náms, hvar fáum við þá kennara til að kenna t. d. dönsku og ensku í mentaskólanum, og hver á þá að kenna stærðfræði og stjörnufræði, eðlisfræði, grasafræði, dýrafræði og landafræði, öll þessi fræði, sem Háskólinn okkar fæst ekkert við enn þá, og eru þó svo margfalt nytsamari og nauðsynlegri en sú lofsæla latína og gríska? Og hvar á þá að fá verkfræðinga? Við vitum þó allir, að mannvirkjafræðin er orðin ómissandi hjer á landi, eins og annarsstaðar; og hún er nú einhver allra erfiðasta og kostnaðarsamasta námsgreinin í öllum háskólum. — Væri nú ekki nær að íhuga þessar brýnu mentaþarfir hjer í fátæktinni, íhuga, hvort ekki muni rjettmætt að láta einhverja þeirra sitja í fyrirrúmi fyrir þessum klassíska niðursetning; hann yrði sannkallaður landsómagi

Við eigum nú ágætan grasafræðing, dr. Helga Jónsson, ágætan dýrafræðing, Bjarna Sæmundsson, heimsfrægan jarðfræðing, Þorvald Thoroddsen, og annan yngri merkan mann þar, dr. Helga Pjetursson ; og við eigum ágætan talnafræðing, dr. Ólaf Dan Daníelsson. Það er hörmung, segi jeg, að geta ekki gjört þessa ágætu fræðimenn að háskólakennurum, hvern í sinni grein, Háskólanum og þjóðinni til gagns og sóma. En þetta tekur þó út yfir, að koma nú í þess stað með þetta grískutildur, jeg segi tildur, jeg vil ekki segja neitt verra, þótt jeg raunar viti ekki von í neinum manni í þessa stöðu, svo að minkunarlaust sje.

Margar fullvalda þjóðir eiga enn engan háskóla; við erum langminsta þjóðin í víðri veröld af þeim, sem eiga slíkar mentastofnanir. Það er mikill heiður fyrir fósturjörð vora. Og margur háskólinn hefir ekki verið veglegri í upphafi en þessi hjer, og sumir miklu lítilsigldari. Meinið er nú það, að vegna mannfæðarinnar hjer verður afarerfitt að vernda og auka þennan íslenska heiður, erfitt að sjá fyrir því, að vegur og heiður skólans biði ekki hnekki, og fari vagandi jafnt og þjett. Það er eins og það er vant: Vandinn er því meiri sem getan er minni.

Þess vegna er þetta frumvarp ekkert smámál — heldur mikilsvarðandi stórmál. Og þess vegna er þetta frumvarp ein slysnin, ein af mörgum, sem hjer vilja til, — af því að þjóðin er ekki enn komin til sjálfrar sín, eftir sitt margra alda: öngvit, — hún er enn svo ónýt í reikningi, þingið oft svo óprúttið, að yfirgengur. Þetta glappaskot er mjer svo auðsætt, af því að jeg var mjög mikið riðinn við stofnun Háskólans.

Jeg býst í lengstu lög við því, að háttv. deild hætti við þetta frv. En bregðist sú von, eigi þetta að gjörast, og verði öll mín íslensku rök dæmd ómerk, en þessi klassíski dósent talinn þingsæmd og þjóðarnauðsyn, þá er að taka því.

Jeg læt nú lokið máli mínu, herra forseti, og ætla ekki að tefja fyrir aftur, hvað svo sem sagt kann að verða í minn garð; mjer er ekki það sárt um sjálfan mig. En alt þetta tal mitt kemur af því, hæstv. forseti, að mjer er svo mikil raun að skjótræði stúdentafjelagsins, háskólaráðsins og Alþingis í þessu máli. Og þó kvíði jeg því mest af öllu — í alvöru talað — ef svo skyldi fara, að þetta óþarfa nýja embætti yrði drifið í gegn í flughasti núna á þessu aukaþingi. Eigi að afgreiða þetta mál svona í hendingskasti eins og brýna þjóðarnauðsyn, og þverneita að fresta því til aðalþings að sumri, til nánari íhugunar — því kvíði jeg fyrir, sárkvíði, ef svo færi, því að þá er öldungis víst, að hjer býr eitthvað undir, sem menn vilja ekki láta uppi, eitthvað, sem ekki verður Alþingi til sæmdar, eða Háskólanum til heiðurs. eða þjóðinni neinn fagnaðarfengur.

Þegar ný embætti eru stofnuð, verður manni ætíð fyrst fyrir að spyrja : Hvar er maðurinn? Að stofna embætti, en eiga enga völ á færum manni, það er oftast óhyggilegt og vetur verið háskaleg fásinna; það hefir stundum orðið til þess, að lítt nýtir menn hafa öðlast það nýja embætti, og Alþingi síðan núið um nasir, að hafa búið til óþarfa stöðu handa ónýtum manni. Og hvort heldur þingið er sekt eða saklaust af þessu, þá er víst, að þess konar óvarkárni hefir átt mjög stóran þátt í því, að rýra traust þjóðarinnar á þinginu að undanförnu, og magnað stórum tortryggnina í landinu.

Þetta mál er því mjög aðgæsluvert. Og þess vegna spyr jeg hreint og beint, hæstv. forseti: Vita flutningsmenn af nokkrum Íslending, fáanlegum, sem vansalaust sje að veita þetta virðulega embætti ?

Jeg veit það ekki. Þess vegna spyr jeg, svo að það sjáist,, að svarið er ekki til. Væri það til, þá væri það komið fyrir löngu. Jeg met alls einskis það svar, að sje enginn til, þá fari nú einhver að búa sig til! Þetta er alt á botnlausri huldu; hjer er steinþagað yfir margfalt nauðsynlegri námsgreinum, t. d. stærðfræði og náttúrufræði — íslenskri náttúrufræði, hæstv. forseti — þó að við eigum þar ágæta fræðimenn, sem koma ekki þjóðinni að hálfum notum, af því að þeirra nýtur ekki við í Háskólanum. Þetta varast menn að nefna, og fitja svo upp á margfalt óþarfari fræðigrein, sem hjer í fátæktinni er sjálfkjörin til að sitja á hakanum; og ekki svo mikið, að hjer fylgi nein minsta vissa fyrir því, að boðlegur maður sje fáanlegur í þennan hægindastól.

Það má nú segja, að þá væri hvað eftir öðru, ef þessu þarflausa embætti væri komið á stofn nú á aukaþingi, og síðan bættist það ólag ofan á, að einhver ómaklegur lánleysingi yrði fyrir því láni, að fá að hlamma sjer í þennan makindasess og ala þar sitt letilíf, engum til gagns. Þess vegna spyr jeg: Hvað liggur á þessu, öðru eins og þessu, öllum á óvart — á aukaþingi ? Því má þetta ekki bíða ?

Hvar er maðurinn?

Flutningsmenn þessa frumvarps geta engan nefnt, vita engan fáanlegan í embættið, sem þeir telja sjer skammlaust að nefna á nafn. Einmitt af því ættu þeir ekki að hætta sæmd sinni í slíka óvissu, heldur taka þetta frumvarp aftur núna á þessu þingi.

En sjeu þeir hiklausir í áframhaldinu, og telji kappi sínu óhætt án forsjár, þá álít jeg, að við hinir gjörum þeim og þinginu og þjóðinni góðan greiða, ef við frestum þessu máli og felum stjórninni að íhuga vandlega hverjar umbætur á Háskólanum sjeu bráðnauðsynlegastar og hvað gjöra megi til þess að koma þeim á.

Þess vegna bið jeg hæstv. forseta að bera upp svohljóðandi rökstudda dagskrá, sem flutningsmenn og nefndin geta vel við unað :

„Deildin skorar á stjórnina, að leita til háskólaráðsins og engu síður til íslenskra fræðimanna í þeim fræðum, sem eru ekki enn þá kend í Háskólanum, og afla sjer álits allra þeirra merkustu íslensku fræðimanna um það, hvaða háskólafræðigreinar þeir telji nauðsynlegastar hjer á landi af þeim, sem enn eru ekki kendar í Háskólanum, og hver tök muni vera á því að kenna þær greinar, sem rök benda til að eigi að sitja í fyrirrúmi, . þegar á alt er litið, mentalíf og bjargræðisvegu þjóðarinnar, og tekur deildin því fyrir næsta mál á dagskrá“.