20.07.1914
Efri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)
76. mál, löggilding verslunarstaðar að Stóra-Fjarðarhorni
Flutningsm. (Magnús Pjeturss.):
Jeg vil fyrst og fremst biðja háttvirta deild að taka ekki hart á því, þó að frumvarp þetta komi svo seint fram, því að til þess liggja sjerstakar ástæður, eins og jeg mun koma seinna að.
Svo er mál með vexti, að í dal nokkrum upp frá Kollafirði er bleikjuholt. Þessi bleykja hefir reynst að vera ágætur postulínsleir. Fyrir nokkrum árum var því holt þetta selt sjerstaklega, en nú í vor var fyrst gjörð veruleg gangskör að því að rannsaka námu þessa. Komu fjórir Englendingar í því skyni og mældu út járnbrautarstæði og því um líkt. Að vísu komu þeir svo snemma, að þeir gátu ekki
með vissu sagt, hvort náman væri nógu stór til þess að það borgaði sig að vinna hana, en það verður rannsakað til fulls í sumar.
Nú er þó málinu komið svo langt, að. nokkrir Skotar og Englendingar og einn eða fleiri Íslendingar eru í aðsigi með að stofna hlutafjelag, til þess að vinna þessa. postulínsnámu. En nú með síðustu skipum bárust brjef hingað þess efnis, að ekkert yrði úr stofnun hlutafjelagsins, nema. löggiltur yrði verslunarstaður þar sem leirnum yrði komið á skip. Þegar jeg frjetti að þetta gæti orðið þröskuldur í vegi þess,. að náman yrði unnin, að minsta kosti. fyrst um sinn og jafnvel fyrir fult og alt,. þá kom jeg fram með frumvarp þetta; þó það væri orðið of seint, í því trausti að. háttv. deild tæki þessar ástæður til greina og leyfði frv. fram að ganga.
Vona jeg að háttv. deildarmenn verði mjer samdóma um að greiða fyrir því, að. þess háttar atvinnurekstur geti komist á, en tefji ekki fyrir því eða spilli á nokkurn hátt.