03.07.1914
Efri deild: 2. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)
56. mál, varnarþing í einkamálum
Björn Þorláksson:
Þá er þetta frv. er lesið og ástæður stjórnarinnar fyrir því, er auðsætt, að í því felst allmikilvæg breyting á núgildandi ákvæðum um þetta efni. Það er tekið fram í ástæðum stjórnarinnar, að tilgangurinn sje að gjöra mönnum hægra fyrir að neyta rjettar síns, en það er vafamál, hvort. það hefir hins vegar ekki þær afleiðingar, að aðrir missi rjettar síns og málaferli vaxi í landinu. Jeg vil því leggja til, að þriggja manna nefnd sje kosin til að íhuga málið að lokinni umræðu.