16.07.1914
Efri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (1807)

56. mál, varnarþing í einkamálum

Framsögum. (Steingrímur Jónsson):

Eins og sjá má á nefndarálitinu á þgskj. 83, höfum við nefndarmenn orðið ásáttir um að ráða háttv. deild frá því að samþykkja frumvarp þetta. Er það þó ekki af því, að við sjeum ekki samþykkir aðalstefnu frumvarpsins og þeirri breytingu. sem þar er farið fram á, heldur af því, að oss finst farið alt of stutt, fyrst á annað borð er farið að breyta hinu forna skipulagi. Oss finst, eins og að orði er komist í athugasemdum stjórnarinnar við frumvarpið, að hjer sje verið að setja nýja bót á gamalt fat.

Málið þyrfti að taka fyrir í heild og athuga í hve margar dómþinghár hverju lögsagnarumdæmi skyldi skifta og hvernig skiftingunni skyldi haga. Nú sem stendur eru margar dómþinghár í hverju lögsagnarumdæmi, nema í kaupstöðunum og Vestmannaeyjum, þar sem hún er að eins. ein í hvoru um sig. Þetta fyrirkomulag er sjálfsagt bygt á því, hve erfiðar samgöngur voru, þegar það komst á, og viðskifti öll óbrotnari. Það mun hafa verið gjört ráð fyrir, að málin yrðu að jafnaði, útkljáð á manntalsþingum, og þá mætti segja að það væri hagkvæmt skipulag, að hafa dómþing viðlíka mörg og sveitafjelög. Nú er komin töluverð breyting á. Samgöngur orðnar stórum auðveldari, en viðskifti og málaferli hins vegar aukist að miklum mun, svo að ekki er viðlit, að öll mál verði nú leidd til lykta á manntalsþingum.

Nefndin vill því að skipulagi því, sem nú er, sje gjörbreytt; og er líklegt að nægi, að ákveða eina dómþinghá í öllum minni lögsagnarumdæmunum, en tvær eða þrjár í hinum stærri. Í öðru lagi virtist nefndinni nauðsyn bera til að lögákveða, hvar dómþingin skyldu háð og skipa fyrir um föst sýslumannasetur, til þess að tryggja dómþingunum stað þar sem haganlegast þykir; að öðrum kosti væri það komið undir því, hvar sýslumaður sæti í það og það skifti, hvar málin skyldi reka.

Nefndin var og hrædd um, að eigi mundi eins mikið gagn að breytingu þessari eins og til er ætlast. Engum er eftir frumvarpinu gjört að skyldu að höfða mál í dómþinghá þeirri, þar sem sýslumaðurinn býr, en að eins gefinn rjettur til þess. Afleiðingin mundi verða sú, að í flóknum og vafasömum málum mundu menn lítt nota þennan rjett. Oss virðist ekki rjett að gefa að eins heimild þá, sem frumvarpið vill gefa, heldur, ef breyta á, þá sje það gjört að skyldu, sem hjer er heimilað. En til þess þarf málið meiri undirbúning en kostur er á hjer. Það þarf að rannsaka, hvernig heppilegast sje að skifta landinu í dómþinghár. Þá mundi það og koma til skoðunar, að leggja niður manntalsþingin, því að ekki er mikið með þau að gjöra; þegar þau hætta að vera dómþing. Það er þegar búið að skerða verksvið þeirra með lögum nr. 59. 10. nóv. 1905 um varnarþing í skuldamálum, og óhætt mun að segja, að þeirra sje nú miklu minni þörf en áður fyr.

Nefndin álítur að rjett sje að sinni, að láta sitja við það, sem nú er, en undirbúa miklu gagngjörðari breytingu en hjer er ætlast til að verði.

Að endingu vona jeg að háttvirt deild samþykki það, að málið sje ekki látið ganga fram að þessu sinni; en því sje hins vegar beint að stjórninni að undirbúa málið undir næsta þing á þann hátt, sem jeg hefi bent á og um er talað í áliti nefndarinnar.