16.07.1914
Efri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (1812)

56. mál, varnarþing í einkamálum

Framsögum. (Steingrímur Jónsson ):

Jeg skal geta þess út af ummælum hæstv. ráðherra um að nefndin hefði getað beðið um frumvarp það, sem um þetta efni liggur í stjórnarráðinu, að hún hugði að breytingar þær, sem þar er farið fram á, væru svo stórstígar, að ekki væri til neins að taka þær til athugunar á aukaþingi.