21.07.1914
Efri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

72. mál, hlutafélagsbanki

Karl Einarsson; Jeg sje á nefndarálitinu, að nefndin er sammála um að auka verði seðlaútgáfuna, og er það víst rjett. Hún hefir vafalaust fundið heppilega leið til þess, en það, sem hún að öðru leyti segir, er ekki í samræmi við þau tryggingarskilyrði, er hún setur.

Því verður ekki neitað, að landssjóður tekur á sig ábyrgð með seðlaútgáfurjettinum, er hann er veittur, því að þótt lagastafir sjeu eigi fyrir því, verður landssjóður að taka bankann að sjer, ef hann getur eigi innleyst seðlana, og það af þeirri ástæðu, að það mundi hnekkja lánstrausti landsins út á við og valda miklu tjóni einstaklinga í landinu, ef hann gjörði það eigi.

En hjer er blandað saman seðlafúlgu og veltufje. Seðlar eru til að hafa peninga á reiðum höndum, en ekki til hafnargjörða og þess háttar. Þó einhver seðlafúlga sje lánuð út, kemur hún brátt inn í bankann aftur. Það er alveg takmarkað, hvað úti getur verið af seðlum milli manna, og fer að eins að nokkru eftir því, hversu mikið veltufje er í landinu. Hlutafje, það er veltufje, sem, ef það er lánað út, stendur í þeim fyrirtækjum, sem framkvæmd voru fyrir lánið. Fyrir slíkt fje gjöra menn hafnir, byggja brýr, vegi, hús o. s. frv. En hjer er ekki neitt talað um aukning á veltufje, heldur á fúlgu seðlanna, sem líklega er þá nóg í svip, eða fyrst um sinn, ef veltufjeð er ekki aukið. Jeg hefði því kunnað betur við að setja bankanum þau skilyrði fyrir auknum seðlaútgáfurjetti, að hlutafje hans væri aukið. Þá hefði jeg óhræddur greitt atkv. með frv. Hluthafar hafa nóg fje að leggja fram, ef þeir vilja og álíta það nógu vel trygt í bankanum. Jeg álít því rjettara að veita ekki þetta leyfi, er hjer ræðir um, nema með því skilyrði, að hlutafje hans sje aukið. Skýrsla bankans sýnir líka, að seðlarnir tolla eigi úti að nokkrum mun, nema nokkra daga á haustin.