24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)
72. mál, hlutafélagsbanki
Sigurður Stefánsson:
Jeg skal sem óbankafróður maður ekki blanda mjer mikið í þær umræður, er fram hafa farið um þetta mál, en fæ ekki varist að geta þess, að mjer virðast þær hafa farið fyrir ofan. og neðan aðalatriði málsins, sem sje það, hvers viðskiftaþörf landsmanna krefjist. Deildarmenn segja hver um annan þveran, að þeir beri traust til bankastjórnarinnar. Nú segir þessi bankastjórn, að hún geti ekki fullnægt viðskiftaþörf landsins með þeirri seðlafúlgu, sem hún nú hafi. Mjer finst það æði mikill skortur á trausti, ef þingdeildarmenn leggja ekki trúnað á þessi orð hennar, og að þeir ættu að hugsa sig tvisvar um, áður en þeir neita um. rýmkun á seðlaútgáfurjettinum. Síðustu tvö árin hafa heyrst almennar kvartanir um, að lán fengjust ekki með viðunandi kjörum, meira að segja, að lán væru ófáanleg til mestu nauðsynjafyrirtækja, þótt nægar tryggingar væru í boði. Við vitum, að Landsbankinn getur ekki veitt lán, nema með afarkostum. Veðdeildarbrjefin eru seld með miklum afföllum, 94%, og jafnvel ekki unt að koma þeim út fyrir það verð. Hvernig geta nú þingmenn rjettlætt, að sinna ekki málaleitun bankastjórnarinnar, þegar svona er ástatt, og bæta þannig úr viðskiftaþörfinni? Ef menn trúa bankastjórninni eins vel og látið er í veðri baka, þá á ekki að setja henni þau skilyrði, er hún getur ekki fullnægt með neinu móti. Þörf landsmanna á fje er sárbrýn. Það kemur niður á landsmönnum, ef bankinn verður að fá sjer fje á annan hátt en hjer er farið fram á. Það hefir áhrif á vexti bankanna, sem þá fara hækkandi.
Því var varpað fram af einhverjum hv. deildarmanni. að þingið sýndi Landsbankanum minni velvild en Íslandsbanka, bæri minni umhyggju fyrir honum; en þetta er ekki rjett. Á síðasta þingi var samþykt að leggja Landsbankanum 100 þús. kr. á ári í 20 ár. Þrátt fyrir þetta hefir bankinn ekki getað fullnægt viðskiftaþörf landsins. Hví ekki að greiða fyrir því, að henni geti orðið fullnægt með því að rýmka um seðlaútgáfurjett Íslandsbanka? Það er aðalatriðið í málinu. Jeg hefi ekki getað sannfærst um, að mikið sje gjörandi úr þeim skilyrðum, er háttv. þingdeildarmenn vilja setja bankastjórninni. Ef þinginu er nokkur alvara að bæta úr viðskiftaþörfinni, þá verður að ráða mestu í málinu, að henni verði fullnægt.