24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

72. mál, hlutafélagsbanki

Framsögum. (Kristinn Daníelsson) :

Þó að háttv. þm. Ísfjk. (S. St.) talaði um, að þingdeildarmenn hefðu lýst yfir trausti á bankanum, þá man jeg ekki eftir, að það hafi verið aðalefnið í ræðum um málið hjer. Það hefir auðvitað ekki orðið komist hjá að tala um atvik, er komið hafa fyrir bankann. En það hefir ýmislegt komið fyrir, sem sýnir, að við berum eigi vantraust til bankans. Og það geta víst allir tekið undir, að sá Íslendingur, sem er annar aðalbankastjórinn, sje mesti sæmdarmaður. Hitt verð jeg aftur að taka fram, að það eru of sterk orð, er sagt er, að hjer sje settur slagbrandur fyrir það, að bankinn geti fullnægt viðskiftaþörf landsins, ef frumvarpið verður að lögum. Íslandsbanki hefir til þessa haft nóga seðla, og það eru ekki seðlarnir, heldur veltufjeð, sem fullnægir viðskiftaþörfinni. Það er venjulega ekki úti af seðlunum nema ein miljón, svo að alt af er nóg í bankanum til að lána, nema ef til vill í október, en það kemur varla til þess, að þá vanti næsta haust.

Háttv. 1. kgk. (J. H.) segir, að samþykt tillögunnar sje sama sem að fella frv.. en slíkt nær ekki nokkurri átt. Vjer sýnum bankanum traust með því að samþykkja frumvarpið. Sýni nú bankinn að hann hafi traust á sjálfum sjer með því að auka hlutafje sitt.

Þar sem háttv. þm. Ísfjk. (S. St.) blandaði inn í þetta mál lögunum frá seinasta þingi um að landssjóður legði til Landsbankanum 100 þús. kr. á ári í 20 ár, þá er slíkt þessu frumvarpi algjörlega óviðkomandi. Það var gjört til að varna því, að bankinn þyrfti að segja upp lánum og minka þannig viðskiftafje sitt, en ekki til að auka það. Bankanum var 1909 leyft að fá lán, og ef hann hefði nú orðið að fara að greiða það, þá hefði hann orðið að taka það úr veltunni, en slíkt þótti ógjörlegt, eins og þá stóð á.