10.08.1914
Efri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)
31. mál, þingsköp Alþingis
Júlíus Havsteen:
Í það sinn, sem hjer er um að ræða, stóð svo á, að stöðvun var á atkvæðagreiðslu í þessari deild, af því að atkvæðagreiðsla um samskonar mál, var í neðri deild. Út af þessu reiddist hv. núverandi 5. kgk. (B. Þ.) og brúkaði þau orð við mig, að þetta skyldi hann muna mjer síðar. Jeg man það, að mjer og þeim manni, sem þá var ritstjóri Alþingistíðindanna með mjer, kom saman um, að ekki ætti við að innfæra í þingtíðindin þess konar samtal. Hv. 5. kgk. hafði heldur eigi beðið leyfis um að taka til máls. Jeg get ekki skilið, að nokkur þörf sje að færa slíkt inn í þingtíðindin, ekki fremur en þó einhver þingmaður í salnum tali hitt eða annað, án þess að í ræðu sje. Stundum kemur það fyrir, að orð um eitthvert innanþingsmálefni eru ekki bókuð, og kom það einmitt fyrir nú í sumar þann dag, er jeg í fjarvist forseta sat í forsetastóli, að hinn háttv. 5. kgk. tók til máls í fundarlok og kvartaði undan því, að hitað hefði verið upp Alþingishúsið sama dag, en engum hefir víst komið til hugar, að bóka ætti slíkt, enda var það ekki gjört.