13.07.1914
Efri deild: 7. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)
17. mál, bann gegn útflutningi á lifandi refum
Flutningsm. (Sigurður Stefánsson) :
Þó að þessu frumvarpi væri tekið vel hjer við 1. umr., þá hefi jeg þó orðið var við að deildinni þykir ástæða til að skipa nefnd í málið. Og það er öðru nær en jeg hafi neitt á móti því, því að mjer er mjög kært að frumvarpið verði íhugað sem best. Jeg ætla því ekki að lengja umræðurnar að þessu sinni, og mun því alls ekki svara þó að einhver fari að veitast að frumvarpinu.