22.07.1914
Efri deild: 15. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

17. mál, bann gegn útflutningi á lifandi refum

Magnús Pjetursson :

Jeg hefi ekki miklu að bæta við hina snjöllu ræðu hv. framsögum. minni hlutans (S. St.). Það dugar líklega hvort sem er ekki að malda í móinn; forlög frumvarpsins munu að líkindum fyrirfram ákveðin. Sjerstaklega vil jeg þó íhuga, hvort það muni vera rjett í nefndaráliti meiri hlutans, að hægt muni vera fyrir þá, sem refa vilja ala upp, að fá nóga refa, þótt útflutningur sje leyfð ar. Þótt þessu hafi verið haldið fram, verð jeg að vjefengja það. Jeg veit til þess, að á Ströndum hafa þeir, sem refa ala, ekki fengið eins marga og þeir hafa viljað. Það má segja að þetta komi til af því, að þeir hafi ekki haft umboðsmenn til að kaupa fyrir sig nógu víða. En jeg efast stórum um, að það hefði nægt, því að sumir geta tekið á móti miklu, ef þeir á annað borð ættu kost á að fá refana. Komist refaræktin á víðar en nú, eins og öll líkindi eru til, þá má telja víst að hörgull verði á refum til að ala upp, og enn meiri hlýtur hann að verða, ef útland samkepni bætist við hina innlendu.

Þessi atvinnuvegur er enn á tilraunastigi, og er því enn meiri ástæða til að hlynna að honum fyrir það.

Háttv. framsögumaður meiri hlutans (K. F.) talaði um, að meiri kostnaður væri við að stunda refarækt á meginlandi en í eyjum. Það kann satt vera, ef um reglulega refarækt er að ræða, en það mun varla rjett, ef að eins er lögð stund á að ala refana upp til að fá af þeim skinnin. Til þess þarf ekki annað en að taka einhvern húskofa, setja í hann steinsteypugólf og reisa járnþynnur upp með veggjunum neðanverðum. Þannig er það gjört sumstaðar á Ströndum og lánast oft vel og hefir gefið góðan arð.

Háttv. framsögumaður meiri hlutans (K. F.) var að bera saman kostnað við girðing í eyjum og á landi. En þess er að gæta, að víða í eyjum er eigi unt að gjöra girðingar um refa, og er tvent sem því veldur. Landshættir eru sumstaðar þannig, að ekki er hægt að setja upp öruggar girðingar; og í öðru lagi hagar víða svo til, að mönnum mundi ekki detta í hug, að loka refa inn í girðingum í eyjum, þó hægt væri. Fjara er þar svo góð, að eftir að refarnir eru fullvaxnir, fá þeir mikið af fæðu sinni úr henni, bæði dauða fugla og annað; en girðingin mundi útiloka tófurnar frá því að komast í fjöruna.

Svona hagar til um eyjar, sem jeg þekki; með öðrum orðum að ómögulegt er að stunda refarækt í þeim, en einungis refaeldi.

Háttvirtur framsögumaður meiri hlutans (K. F.) hefir enn ekki getað sannfært mig um það, að hægt sje að fá góða refa víða úr löndum annarstaðar en frá Íslandi; hann hefir ekki fært neinar sannanir á það, svo þar stendur enn staðhæfing gegn staðhæfingu; hvorugur okkar veit það með fullri vissu. Það lítur svo út sem refarækt muni bráðlega fara að verða almennur atvinnuvegur hjer í landi. Þegar menn komast að raun um, hvað lítið það kostar að ala tófur upp til að slátra þeim, og þegar skinnin hafa náð fullu verðmæti, þá má telja víst, að margir fari að leggja stund á tófuræktina. Nú meðan skinnin eru í þessu háa verði, væri það ekki rjett gjört af þinginu, að reyna ekki að hlynna að þessum nýja atvinnuvegi.