06.08.1914
Efri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)

90. mál, lán til raflýsingar fyrir Ísafjarðarkaupstað

Steingrímur Jónsson :

Jeg vil leyfa mjer að benda háttv. forseta og háttv. deild á, að það er meira en vafasamt, hvort þetta frv. er rjettilega flutt inn á þing samkv. 25. gr. stjórnarskrárinnar. Síðasta málsgrein þeirrar greinar hljóðar svo: „Frumvarpið til fjárlaganna, og eins frumvörp til fjáraukalaga skal jafnan fyrst leggja fyrir neðri deild Alþingis“. — Jeg get nú ekki betur sjeð en að þetta frv. sje fjáraukalagafrv., þó að það nefnist frv. til heimildarlaga, og kemur það því í bág við 25. gr. stjórnarskrárinnar, og það því fremur, sem fjáraukalögin hafa verið feld í Nd. — Jeg hygg, að þingið hafi komist inn á mjög athugaverða braut í þessu efni. Háttv. Nd. hefir felt fjáraukalagafrv., sem nefnd hafði haft til meðferðar um mánaðartíma, en svo er í þess stað laumað inn í þingið hinum og þessum frv. til heimildarlaga. Hjer með er girt fyrir það, að fjáraukalaganefndin geti haft nokkurn hemil á fjáraustrinum. Og hver veit nema sjálf fjárlögin verði feld á næsta þingi, og svo fyrir fult og alt lagt út á þá braut, að stjórna landinu með heimildarlögum. Mönnum finnast þetta ef til vill öfgar, en er það furða, þótt menn sjeu óvissir um, hvert stefnt sje, þegar Alþingi tekur upp á slíku háttalagi sem þessu. — Þar að auki vil jeg benda á, að nýlega hafa báðar deildir samþykt frv., þar sem tekið er fyrir allar lánveitingar úr landssjóði. Jeg verð því að álíta, að alt mæli á móti þessu frv.