07.08.1914
Efri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

90. mál, lán til raflýsingar fyrir Ísafjarðarkaupstað

Kristinn Daníelsson :

Það er fjarri því, að jeg sje móthverfur máli þessu, í sjálfu sjer; mjer væri það kært að geta stutt það. En nú mun ekki vera til fje í landssjóði, sem óhætt sje að sjá af til lánveitingar þessarar. Jeg held líka að það sje óheppilegt, að taka tappann úr tunnunni, eins og háttv. 3. kgk. (Stgr. J.) komst að orði, eða að víkja frá þeirri stefnu, sem jeg veit ekki betur en að orðið hafi ofan á, þeirri stefnu, að veita á þessu aukaþingi ekki fje til neins annars en þess, sem óhjákvæmilegt er að leggja fje til, og sem jafnframt snertir landið alt í heild sinni.

Háttv. þm. Ísafj. (S. St.) sagði að Ísfirðingum mundi þykja slæmt, ef þessi lánsheimild fengist ekki. Jeg trúi því vel; en jeg veit líka með vissu, að öðrum mundi þykja slæmt, væri hún samþykt, ekki síst þeim, sem synja yrði um samskonar beiðni.

Að eins af þessu vil jeg láta tappann í tunnuna, og veita að þessu sinni ekki fje til neins annars en þess, sem snertir alt landið.