07.08.1914
Efri deild: 34. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

90. mál, lán til raflýsingar fyrir Ísafjarðarkaupstað

Steingrímur Jónsson:

Jeg held því enn fram, að rjett sje að bera þetta lán saman við lánveitinguna til niðursuðuverksmiðjunnar á Ísafirði; það lán var veitt vegna Ísafjarðarkaupstaðar, og af því að því var haldið fram þá, að lánveitingin væri svo afarnauðsynleg vegna almennings á Ísafirði, þá gat stjórnin ekki staðið af sjer að veita lánið, fyrst heimildin til þess var á annað borð veitt.