21.07.1914
Neðri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

2. mál, sauðfjárbaðanir

Þorleifur Jónsson :

Eg verð að lýsa yfir því, að eg mun aðhyllast tillögu háttv. minni hl. í þessu mál. Mér finst frumv., sem hér liggur fyrir, vera til bóta. Ákvæðið í lögunum um sauðfjárbaðanir frá í fyrra, um, að stjórnarráðið skuli sjá um útveganir á þessari einu vörutegund, var algerlega óþarft, og að mörgu leyti óheppilegt. Það miðar eingöngu til þess að auka landsstjórninni óþarfa snúninga og mas, en kemur á hinn bóginn að engu gagni fyrir landsmenn. Því að eg býst ekki við, að baðlyfið verði þeim mun ódýrara þó að það sé keypt á þenna hátt, heldur en hægt er að fá það hjá kaupmönnum, með þeirri samkepni sem nú á sér stað bæði um þessa vöru og aðrar. Eg verð því að telja það betur farið, ef þessi breyting á lögunum, sem frumv. fer fram á, gengur fram.

Það hefir verið tekið fram, enda er það mikilvæg ástæða, að það er engan veginn auðgert fyrir menn að ákveða það löngu fyrirfram, hvað mikið baðlyf þeir muni þurfa að nota. Um það verða menn að renna blint í sjóinn. Það er ekki fyrr en komið er undir haust, að menn geta farið að ákveða, hvað þeir ætla að setja mikið á, því að það fer vitaskuld mikið eftir því, hvernig heyskapurinn hefir gengið. Lögin leggja þess vegna óþægilega byrði á almenning, þar sem þau gera ráð fyrir að menn ákveði það snemma ára, hvað mikið baðlyf þeir þurfi.

Það var víst háttv. þm. S.-Þing. (P. J.), sem efaðist um, að rétt væri að fella burt úr lögunum 5. gr., þar sem ákveðið er að hreppsnefndirnar skuli sjá um baðlyfjakaup. Það getur verið að betra væri að ákvæði í þessa átt fengi að haldast, en eg er þó ekki hræddur um, að það yrði að stórum baga, þó að þessi grein væri afnumin. Í flestum kaupstöðum landsins mun nú vera nægilegur forði af þessari vörutegund.

Menn hafa séð, að fjárböðunin hefir góð áhrif á ullarvöxtinn, svo að eftirspurnin eftir baðlyfjunum er orðin mikil. Kaupmenn sjá þess vegna sinn hag í því, að hafa jafnan nóg af þeim fyrirliggjandi. Eg hygg því, að mönnum verði aldrei skotaskuld úr að afla sér baðlyfja, þó að engin sérstök lagafyrirmæli væri um það efni.

Það er hætt við því, að vafningasamt verði fyrir stjórnarráðið að annast um þetta mál, og ekki síður erfitt fyrir almenning út um land að haga sér eftir fyrirmælum þess. Eg hefi ekki séð ennþá auglýsingu stjórnarráðsins um það, hver baðlyf eigi að nota í haust, enda hygg eg að hún sé ekki komin út enn. (Ýmsir þingmenn: Jú, hún er komin). Það er þá alveg nýverið, og er þá hætt við, að hún verði seint komin út um landið, ekki sízt í þær sýslurnar, sem tregastar hafa samgöngurnar, svo sem mín sýsla. Getur því svo farið víða, að menn eigi óhægt með að ná í þá baðlyfjategund, sem stjórnarráðið fyrirskipar.

Eins og ákvæðin eru í lögunum, verður baðanamálið erfiðara og vafningssamara en nauðsyn krefur. Það væri miklu nær að menn hefði lausar hendur, að öðru leyti en því, að hreppsnefndirnar hefði umsjón með, að allir böðuðu fé sitt. Það er það sem mest á ríður, og til þess voru lögin sett, að einn einstakur maður gæti ekki ónýtt baðanir heils sveitarfélags, með því að skjóta sér undan að baða fé sitt, og léti það ganga saman við baðað fé nágrannanna. Því að þótt hugsunarhátturinn sé nú orðinn allvíðast sá, að menn telji sjálfsagt að baða, þá geta þó verið til þeir trassar, sem sjá ekki hag sinn og hirða ekki um það. Og þeirra vegna var það, að lög þessi vóru samþykt og sett. Með þeim átti að koma í veg fyrir að þeir gæti ónýtt baðanir fyrir öðrum.

Eg tel það í alla staði rétt, sem þetta frumv. fer fram á, og hygg að það verði til talsverðra bóta á gömlu lögunum.