20.07.1914
Efri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
70. mál, afnám eftirlauna
Flutningsm. (Hákon Kristófersson) :
Mjer kom það mjög á óvart, að svo miklar umræður þyrftu að vera um málið að þessu sinni, sem raun er á orðin, og jeg held að það sje ekki rangt álitið hjá mjer, að sá háttv. ræðumaður, sem síðast talaði, (Stgr. J.) hefði getað sparað sjer það, sem hann sagði, þangað til málið kom frá nefndinni aftur. Mjer þykir vænt um að háttv. 3. kgk. áttaði sig fljótlega á því, að tilgangur minn með þessari tillögu var ekki sá, að leggja snöru fyrir hinn tilvonandi ráðherra; en jeg get ekki neitað því, að mjer þykir dálítið undarlegt, að honum skyldi vera jafnsárt um það, sem honum virtist vera. Sami háttv. ræðumaður leit á þetta mál fremur sem gaman en alvöru, en jeg get fullvissað hann um, að þetta er fullkomið alvörumál, og það mun sýna sig, að það sigrar að lokum, hversu hátt sem embættismennirnir æpa um að það sje rangt, að taka eftirlaunin af þeim. Sú skoðun mun hverfa, að það sje rjett að veita einni stjett þjóðfjelagsins þan hlunnindi, sem aðrir njóta ekki. Að það sje rjett að endurskoða launalöggjöfina og koma á meiri jöfnuði í launakjörum, skal jeg ekki mótmæla. Líka talaði sami háttv. ræðumaður um, að það væri ofraun fyrir stjórnina að; undirbúa þetta mál fyrir næsta þing. Það má vel vera, að þetta sje rjett. En jeg álít að það sje hlutverk þeirrar nefndar, er skipuð verður, að laga ályktunina, ef þess sýnist þörf, þangað til hún kemur til umræðu aftur. En ef milliþinganefnd er skipuð í málið, þá er mjer spurn, hvort hjer er um svo mikið verk að ræða, að ekki sje hægt að ljúka starfinu fyrir næsta þing, ef jafngóðir menn verða skipaðir í þá nefnd eins og venja er að skipa í slíkar nefndir. Annars álít jeg rjett að geyma frekari umræður um þetta mál, þar til það kemur frá nefndinni aftur, og ætla jeg því ekki að fjölyrða frekar um það að sinni.