21.07.1914
Neðri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (200)

2. mál, sauðfjárbaðanir

Björn Hallsson :

Eg er einn af þeim, sem aðhyllast þá stefnu er háttv. minni hluti hefir tekið í þessu máli. Mér virðist sú stefna, er kemur fram í lögunum frá í fyrra óþarflega fyrirhafnarmikil. Skrifstofuleiðin er erfið og hefir auk þess marga galla. Eg hygg, að það geti komið fyrir, að taxti og fyrirskipanir stjórnarráðsins um þetta efni komist ekki í tæka tíð út til almennings; að minsta kosti er þetta seint á ferðinni nú. Auk þess er hætt við því, að pantanirnar verði ekki alt af komnar á rétta staði þegar á þarf að halda. Og þá er ekki auðgert að ná í baðefnið, úr því að alt er bundið við einn stað.

Einn agnúa hefi eg rekið mig á í þessu máli. Og er þó varla rétt að kalla það agnúa. En hann er sá, að engin reynsla er fengin fyrir því, hvort baðefnið verður landsmönnum ódýrara með þessari tilhögun eða með frjálsri verzlun. Sá taxti, sem stjórnarráðið hefir nú gefið út, og eg hefi séð fyrst í dag, virðist ekki benda í þá átt, fljótt á litið, að rétt sé að halda þeirri tilhögun, sem lögin gera ráð fyrir.

Eg hefi undanfarin ár notað eitt af þeim baðlyfjum, sem stjórnarráðið ætlast til að nú verði notuð, og eg sé ekki betur en að það verði dýrara en eg hefi fengið það hjá því kaupfélagi, sem eg hefi viðskifti við. Þetta atriði virðist benda í þá átt, að ekki sé rétt að halda fast við þessa tilhögun um baðefniskaupin, sem nú er ákveðin í lögunum.

Því er haldið fram í áliti meiri hluta nefndarinnar, að með þessu frumvarpi sé aðhaldið og eftirlitið með, að allir baði, tekið úr lögunum. Þetta hygg eg að sé ekki allskostar rétt. Reyndar skal eg viðurkenna, að með því að afnema 5. greinina, er nokkuð langt gengið. Vildi eg aðhyllast skoðun háttv. þingm. S.-Þing. (P. J.) á þessu atriði. Ef hreppsnefndirnar hefði eftirlit með því að allir baði, þá ætti þær líka að hafa eftirlit með því, að allir kaupi baðlyfin og geri það í tæka tíð. Þetta getur vel samrýmst því að verzlunin sé frjáls. Hreppsnefndirnar geta safnað pöntunum og samið við einhverja verzlun að hafa baðefnið til þegar á því þarf að halda. Með þessu er um leið skotið loku fyrir það, að menn skjótist undan því að baða fé sitt. Þar sem eg þekki til er ekki mikill hængur á því að menn baði. Mér er óhætt að segja, að á Fljótsdalshéraði gera menn það nær undantekningarlaust. Hvað þá þegar nýju lögin koma til framkvæmda. Enda kemur þetta heim við það, að eg hefi hvergi heyrt menn kvarta undan baðanaskyldunni, sem þar er sett, enda þótt sumum hreppum virtist nægja að hafa heimildarlög. Aftur á móti hefi eg heyrt menn tala um, að almenningi væri gert óþarflega erfitt fyrir að ná í baðlyfin. Og það hygg eg að sé réttmæt umkvörtun. Eg vil þess vegna styðja þetta frumvarp.