21.07.1914
Neðri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (201)
2. mál, sauðfjárbaðanir
Bjarni Jónsson:
Eg hafði ætlað mér að láta þetta mál afskiftalaust. En einn háttv. þingmaður (J. J.) gerði mér þann heiður að vísa til mín sem uppeldisfræðings og þykir mér ilt að láta ónotaðan heiðurinn. Eg veit ekki, hvort þessum háttvirta þingmanni þykir eg vera heiðursins eins maklegur, ef eg segi honum, hvað eg hafðist að á síðasta þingi. Eg taldi það hina mestu fásinnu að samþykkja þessi lög, og sagði, að eina mætti setja lög um að skipa mönnum að járna hesta sína, og láta stjórnarráðið sjá um útvegun á hestajárnum og hafa þau jafnan á reiðum höndum. Enn fremur sagði eg, að ekki væri úr vegi og ef til vill öllu þarfara, að skipa fyrir með lögum, að þrifabað skyldi fram fara árlega á öllu mannfé í landinu. Eg hugsaði þá og hugsa enn, satt að segja, að menn kynni að sjá sinn hag í því, ef ullin þeirra batnaði og ullarverðið hækkaði. Eg lít enn svo á, að allar fyrirskipanir um sauðfjárbaðanir sé óþarfar, nema um fjársýki væri að ræða, svo sem kláðann, er landshætta gæti stafað af. Eg leyfði mér að hafa þau orð í fyrra, að það væri ósvífni af þinginu að setja þessi lög og eg leyfi mér að hafa sömu orðin um það enn þá, þrátt fyrir alt, sem eg hefi heyrt um þetta mál síðan í fyrra.
Af þessu hlýtur að leiða, að eg leiði hjá mér allar breytingar á þessum lögum, sem frá upphafi vóru argasta ómynd. Eg geri það jafnt fyrir því, þó að breytingarnar kunni að vera til einhverra bóta.
Eg býst því ekki við, að háttv. þingmaður (J. J.) hafi mikið gagn af mér sem uppeldisfræðingi í þessu máli. En ef nasasjón mín af þeim fræðum gæti orðið honum að liði í öðrum málum, þá skal eg ekki vera kostbær á minni vizku. (Einar Arnórsson: Er þetta íslenzka?). Nei, það er ilt mál. En »hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það«.
Um frumvarpið skal eg geta þess, að mér þykir leiðinlegt, ef sektirnar sem eiga að renna í sveitarsjóð, falla í burtu. En ákvæðin um þær falla burtu, ef 5. gr. verður afnumin. Eg veit ekki hvaða lög eiga skilið að fara á sveitina, ef það eru ekki þessi lög. Eg væri háttvirtum þingmönnum þakklátur ef þeir breytti þessum lögum annaðhvort svo, að þau væri ekki lengur til eða þá svo, að þeir setti mannfé í staðinn fyrir Sauðfé. (Sigurður Sigurðsson: Eða sauðfé á tveimur fótum). Já, eg get fallist á að réttara sé að orða það svo, einkum úr því, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) hefir fundið sér skylt að leggja það til. Honum er bezt trúandi til að vita hvað við á í þessu efni.