30.07.1914
Sameinað þing: 3. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
102. mál, handbært fé landssjóðs komið í gull
Flutningsm. (Einar Arnórsson):
Jeg skal geta þess, að jeg tel mig ekki nógu bankafróðan eða viðskiftafróðan til að svara þessari spurningu; en í nefndinni sitja menn mjer færari til þess; og nefni jeg til þess sjerstaklega háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) og óska jeg að hann vildi taka til máls um þetta.