12.08.1914
Sameinað þing: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
122. mál, gerð íslenska fánans
Ráðherra (S. E.):
Jeg vildi gjarnan leggja nokkur friðarorð inn í þetta mál. Mjer virðist það myndi miklu skipta að því yrði ráðið svo til lykta, að sem flestir mættu vel við una. Að nokkrar líkur myndu vera til þessa, virðist mjer að ráða megi af því, hvað margir hafa lýst yfir því, að þeir myndu ekki láta sig öllu skifta gerð eða lit fánans, láta hitt sitja í fyrirúmi að fánamálið sjálft næði fram að ganga. Nú þykist jeg viss um, að sú leið í þessu máli, sem meiri hluti nefndarinnar leggur til, myndi horfa friðsamlegast við. Sú leið að Alþingi gjöri tillögur um 3 gerðir, bláhvíta fánann, bláhvíta fánann með stjörnuna og þrílita fánann. Með þessu móti er trygt að fánamálið nái fram að ganga, því ein tillagan á, eftir því sem frá hefir verið skýrt, fyrir fram víst samþykki. Þeir sem fylgja þessari gerð eða þrílita fánanum, eiga því vissastan leik á borðinu. Til samkomulags ættu þeir því að una því að tillögur um bláhvíta fánann og bláhvíta fánann með stjörnu yrðu teknar með. —
Að því er bláfánann með stjörnu snertir, þá er jeg viss um að þeir, sem fest hafa trygð við bláhvíta fánann hreinan, munu einnig unna stjörnufánanum. Þvi fremur virðist ástæða til að taka síðastnefnda gerð með, sem enginn vafi leikur á að þjóðinni er bláhvíti liturinn kærastur. Og því verður ekki neitað, að það er ekki lítið atriði í þessu máli, að hugur þjóðarinnar vefji sig um þann fána, sem valinn verður. En jeg get ekki neitað því, að jeg ber kvíðboga fyrir því, þó jeg óski þess eigi, að samúð þjóðarinnar með þrílita fánanum verði ekki eins mikil, ef ekki er áður þaulreynt um það, að bláhvíti liturinn fáist eigi.
Það eru tilmæli mín, að Alþingi taki þá leið í þessu máli, sem líklegust er til að stýra mestum höppum, þá leið, að leggja til þrjár gerðir, því á þeirri leið mætist þó nokkuð af óskum allra.