12.08.1914
Sameinað þing: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)
122. mál, gerð íslenska fánans
Guðmundur Hannesson:
Eins og háttv. þing sjer, er tillagan á þgskj. 440 um gerð hins íslenska fána að eins undirrituð af sex mönnum, rjettum helming nefndarmanna í samvinnunefndinni, og hafa þó tveir þeirra ritað undir með fyrirvara.
Hinn helmingur nefndarinnar, eða öllu heldur fimm menn, því að háttv. 6. kgk. (G. B.) lagði ekkert til, gátu ekki felt sig við þessa tillögu. Vjer sömdum því till. á þgskj. 441.
Jeg vil þá fyrst geta þess, að þótt vjer álítum tillögu vora að miklum mun betri en till. á þgskj. 440, þá er það ekki tilætlun vor að verja hana af kappi. Mjer er að eins falið að skýra, hvað fyrir oss vakti, sem tillöguna flytjum. Ef hún verður feld, munum vjer greiða hinni tillögunni atkvæði, þó ekki falli hún oss í geð.
Í konungsúrskurðinum frá 22. nóv.1913 er gjört ráð fyrir því, að ráðherra kynni sjer óskir manna á Íslandi um gerð fánans. Stjórnin hefir framkvæmt þetta á þann hátt, að nefnd býr málið undir þing og svo á þingið að ákveða gerðina. Til þess erum vjer hjer komnir á fund í sameinuðu þingi.
Þingnefndunum hafa alls komið til hugar þrjár gerðir, sem um var að tala, bláhvíti krossfáninn, stjörnufáninn og þríliti fáninn.
Tillagan á þingskjali 440 fer fram á að þingið sleppi því að velja á milli þessara gerða og biðji konung að taka af sjer ómakið. Vjer teljum það ekki tilhlýðilegt, að auglýsa þannig sundurlyndi þingsins og viljaleysi. Vjer viljum að þingið velji sjálft og segi til með hverri gerð það vill mæla.
Tillaga vor mælir með þrílitu gerðinni. Vjer teljum þá breytingu fegursta og hentugasta af þeim sem vjer höfum sjeð.
Nú er það eigi að síður vort álit, að flestum Íslendingum væri það kærkomnast, að gamli bláhvíti fáninn hjeldist óbreyttur og yrði samþyktur af konungi. Kjósendur víða um land hafa látið þá ósk sína í ljósi.
Vjer höfum viljað taka tillit til þessa, og skýrum konungi frá áliti voru um almennings viljann á þann hátt, að þessari fánagerð sjeu gefnar sem bestar horfur til þess að ná staðfestingu. Oss dylst þó ekki, að fáni þessi er ekki allskostar hentugur. Liturinn ljókkar og fölnar; verður þá fáninn daufur og sviplítill, þekkist auk þess tæplega frá sænska fánanum.
Vjer teljum það ósannað mál, að stjörnufáninn eða annað afbrigði frá gamla fánanum mundi alþýðu kærkomnari en þríliti fáninn. Almenningnum mun fara líkt og sjálfum þingmönnum, að fullur helmingur telur þrílita fánann betri. Hvað sjálfan mig snertir, þá met jeg það mjög mikils, hve mjög honum svipar til fána þeirrar þjóðarinnar, sem oss er náskyldust allra, Norðmanna. Aftur svipar gamla fánanum mjög til Dannebrog. Formaður fánanefndarinnar frá 30. des. f. á. hefir skýrt mjer frá, að það væri síður meðal allra Norðurlandaþjóðanna að hafa stjörnu í efra stangarreit á kontra-admiralsfánum. Þetta gæti gefið mönnum þá hugmynd um stjörnufánann, að hann væri einhvers konar sjóhersfáni, og er það galli á gerð hans. Ein af þeim fánagerðum, sem fánanefndin frá 30. des. hafði athugað, var sú, að hafa stjörnu í öllum reitum fánans — eina stjörnu fyrir hvern landsfjórðung. — Jeg kom með einn slíkan fána og hengdi hann til sýnis hjer í þingsalnum, en skapstillingarmaður einn reif hann sundur í fundarbyrjun.
Stjórnmálasaga síðustu áranna sýnir það víða, að báðir flokkar eiga að lokum sinn góða þátt í því sem gjört er. Þegar stofna átti Íslandsbanka, þá vildi annar flokkurinn jafnframt leggja niður Landsbankann; hinn vildi koma bankastofnuninni fyrir kattarnef. Hvor um sig kom sínu máli að nokkru fram. Íslandsbanki var stofnaður og peningar komu inn í landið, en Landsbankinn stóð eftir sem áður.
Það er hvorki óeðlilegt né óheppilegt, þó svo gangi, að annar flokkurinn leggi til uppistöðuna í voðir þær, sem þjóðin vefur en hinn ívafið.
Fyndnir menn hafa valið þrílita fánanum hæðilegt nafn, kent hann við sundrungina, okkar gamla þjóðarmein. Það væri að vísu auðvelt að gjalda þetta í sömu mynt, en jeg vil ekki uppnefna okkar gamla góða fána. Í mínum augum er þríliti fáninn einmitt einingarinnar tákn. Mestur hluti hans, bláu feldirnir og hvítu randirnar, er uppistaðan frá landvarnar- og sjálfstæðismönnum, en sambandsmenn og heimastjórnarmenn hafa þá skotið í hann glæsilegu rauðu ívafi, rauða krossinum. Hann gæti orðið oss, ef vjer kynnum með að fara, einingarinnar fáni, fáni allra., einskonar marglit Bifröst betri tíma.
Margir telja það illa farið, hve seint fánanefndin frá 30. des. lauk starfi sínu, illa farið, að alþýðu gafst ekki tækifæri til þess að athuga tillögurnar og þingmálafundum að ræða þær.
Vjer getum að nokkru leyti bætt úr þessu.
Ef allir þingmenn ljetu undirróður einstakra manna, gamlan kala og flokkadeilur gleymast, er þeir greiddu atkvæði í þessu máli, ljetu eigin tilfinningar og smekk ráða, þá myndi þjóðarviljinn koma skýrt fram. Það er næsta ólíklegt, að þjóð vor hallist á aðra sveif í þessu máli en þingið.