12.08.1914
Sameinað þing: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)
122. mál, gerð íslenska fánans
Hannes Hafstein:
Jeg þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hans, þó að jeg skilji ekki glögt afstöðu hans gagnvart konunginum í þessu. Það liggur næst að skilja orð hans svo, að hann ætli að búa til þrjú tillöguskjöl um fánagerðina og hafa til taks þrjá konungsúrskurði til undirskriftar og ætli að leggja fyrir konung úrskurð, sem löggildi bláhvíta fánann; synji konungur um undirskrift sína og hafni tillögu ráðherra, þá ætlar hann að draga upp hjá sjer úrskurðinn um stjörnufánann, og ef eins fer með hann og hinn, þá loks tillögu og úrskurð um þrílita fánann.
En hver ber stjórnarfarslega ábyrgð á þessum synjunum konungs? Væntanlega ráðherrann sjálfur, eða hvað ? Þetta er að minsta kosti dálítið óvanalegt fyrir þingræðisstjórn. Jeg skil ekki annað en ráðherra verði að sleppa þessari fyrirætlan, og halda sjer við einhverja eina fánagerð, nema þá því að eins að það vaki fyrir honum að vjer eigum að taka það upp eftir Englendingum, að hafa þrjá fána. Eins og kunnugt er hafa þeir bæði hvítan, bláan og rauðan gunnfána. Það væri ef til vill ekki illa til fallið, að við líktum eftir þeim í þessu.