26.08.1914
Sameinað þing: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)
122. mál, gerð íslenska fánans
Framsögumaður (Karl Finnbogason):
Jeg er þakklátur háttv. flutningsmanni brtt. á þgskj. 441 (G. H.) fyrir það, að hann lýsti yfir því, að hann og þeir flestir, sem honum fylgja, mundu greiða atkvæði með okkar tillögu, ef þeirra fjelli. Þetta var drengilega mælt og vel, eins og von var til. En um leið vil jeg benda á það, að eini vegurinn til þess að allir geti greitt atkvæði með einni tillögu, er sá, að breytingartillagan sje feld, því hana verður að bera upp fyrst, úr því hún var ekki tekin aftur, eins og til var mælst. Og með henni geta ekki allir greitt atkvæði.