01.07.1914
Efri deild: 1. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

Deildarsetning efri deildar

Þessir þingmenn voru mættir, er sæti áttu í deildinni:

A. konungkjörnir:

1. Júlíus Havsteen, 1. kgk. þm.,

2. Eiríkur Briem, 2. kgk. þm.,

3. Steingrímur Jónsson, 3. kgk. þm.,

4. Stefán Stefánsson, 4. kgk. þm.,

5. Björn Þorláksson, 5. kgk. þm.

6. Guðmundur Björnsson, 6. kgk. þm.

B. Þjóðkjörnir:

1. Guðmundur Ólafsson, 2. þm. Húnv.,

2. Karl Einarsson, þm. Vestm.,

3. Karl Finnbogason, þm. Seyðfirðinga,

4. Kristinn Daníelsson, 2. þm. Gullbr.-og Kjósarsýslu,

5. Sigurður Stefánsson, þm. Ísafjarðarkaupstaðar.

Ómættir voru og ókomnir til Alþingis: Hákon Kristófersson, þm. Barðstrendinga, Jósef Björnsson, 2. þm. Skagfirðinga, og Magnús Pjetursson, þm. Strandamanna.

Aldursforseti kvaddi sjer til aðstoðar sem skrifara þá Steingrím Jónsson, 3. kgk. þm., og Björn Þorláksson, 5, kgk. þm.

Björn Þorláksson : Forseta hefir verið afhent brjef undirritað af nokkrum þingmönnum, og er þar farið fram á að fundi verði frestað til næsta dags, vegna þess að þrír af háttvirtum þm. í deildinni, eru enn ekki komnir til þings.

Mjer finst það vera sjálfsögð kurteisisskylda gagnvart þessum háttvirtu þingdeildarmönnum, að fresta að taka ákvarðanir um það, hverjir verða skuli forsetar og skrifarar í deildinni þangað til þeir eru komnir, sem verður í fyrra málið, svo að það getur ekki haft skaðleg áhrif á starf deildarinnar eða tafið afgreiðslu málanna á nokkurn hátt. Jeg vil taka það fram af nýju, að mjer finst þetta sjálfsögð kurteisisskylda gagnvart þeim þingdeildarmönnum, sem enn eru ókomnir, því að það er ekki svo að skilja, að mjer sje nokkurt kappsmál um það, hver verður kosinn forseti í þessari deild, enda vona jeg að það verði ekki að deiluefni, því að hjer í deildinni hefir jafnan verið gott samkomulag, og jeg vona að svo verði á þessu þingi ekki síður en í fyrra sumar. Vil jeg að lokum óska þess, að tillagan um frestinn verði tekin til greina.