01.07.1914
Sameinað þing: 1. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (2151)
Þingsetning í sameinuðu þingi
Framsögum. 2. kjörbrjefad. (Eiríkur Briem):
Önnur deild hefir fengið til meðferðar kjörbrjef þingmanna 1. deildar og útskriftir úr gjörðabókum yfirkjörstjórnanna.
Deildin hefir ekkert fundið athugavert við kjörbrjefin og leggur til, að þau verði öll samþykt. Að eins skal þess getið, að í Borgarfirði í Norður-Múlasýslu var kosið tvisvar, vegna þess að farið var í fyrra skiftið eftir rangri kjörskrá, nefnilega þeirri, sem nú fyrst er gengin í gildi. Yfirkjörstjórnin ljet því kjósa af nýju eftir rjettri kjörskrá. Þessa er hjer að eins getið, án þess að kjörbrjefadeildin hafi nokkuð við þetta að athuga. Tillaga hennar er að samþykkja öll kjörbrjefin.
Tillaga kjörbrjefadeildarinnar samþykt í einu hljóði.