25.07.1914
Efri deild: 18. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)

78. mál, sjóvátrygging

Karl Finnbogason:

Jeg er hv. nefnd þakklátur fyrir að hún hefir að flestu tekið það til greina, sem jeg benti á um daginn. Þó fer því fjarri, að hún hafi gengið þannig frá frv., að jeg sje ánægður. Jeg álít að allmikið vanti á, að frumv. sje þannig úr garði gjört, að rjett sje að láta það fara út úr deildinni. Jeg kysi því að málið væri tekið út af dagskrá, svo að hægt væri að laga það betur.

Jeg þarf ekki að mæla með fyrri brtt. minni á þgskj. 228, því að nefndin hefir þegar fallist á hana. Síðari brtt. er við 9. gr. og fer fram á, að í staðinn fyrir „rjett verð þess hlutar, þá er þeir virtu hann“ komi: „þegar metið var verðmætið“. Ef brtt. verður samþykt, verður síðari hluti 9. gr. þannig orðaður: „Þó á ábyrgðarsali rjett á, að það verð sje lækkað, ef það sannast, að það sje hærra en sanngjarnt var að telja það, þegar metið var verðmætið“. Tel jeg greinina betur orðaða svona og vona að hv. deild fallist á, að svo sje.

Jeg hefi alstaðar í frv. viljað breyta orðinu „hlutur“, af því að mjer virðist það of takmarkað til að ná yfir alt, sem hægt er að vátryggja. Mjer þykir óviðkunnanlegt að kalla t. d. verslunararð „hlut“ og að kalla sjólánskröfur „hlut“ og sjótjónsframlög „hlut“.

Og það er meira en óviðkunnanlegt. Það er ósæmileg meðferð á málinu, sem ætti að vera lógbönnuð en ekki lögleidd.

Það er illa hugsað og þó ver orðað að tryggja „hluti gegn háska“, eins og gjört er ráð fyrir í 6. gr. Hlutir — slíkir sem t. d. verslunararður — verða ekki trygðir gegn háska, heldur því, sem þeim stafar háski af.

Í 19. gr. er talað um, að ábyrgðarsali ábyrgist afleiðingar af háska. Í 20. gr. er talað um, að ábyrgðarsali ábyrgist ekki það, ef gengið er að trygðum munum til „fullnægingar tjóni“. Í 23. gr. er talað um, að ábyrgðarsali ábyrgist háska o. s. frv.

Alt eru þetta bláberar vitleysur. Og slíkar aðrar eru margar enn í frumvarpinu. En hv. nefnd hefir ekki sjeð ástæðu til að breyta þessu. Og mjer vanst ekki tími til að koma fram með tillögur um það, af því frv. hefir verið flýtt svo mjög síðan það kom frá nefndinni, en nóg annað að gjöra.

Jeg tel deildinni vansæmd í, að senda frá sjer frv. eins og það er, og mælist því aftur til að umræðunni verði frestað. En verði það ekki gjört, verð jeg að snúa mjer til hv. Nd. með athugasemdirnar í þeirri von, að hún verði vandari að virðingu þingsins í þessu máli, en hv. Ed.