24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)
51. mál, vegir
Framsögumaður (Jósef Björnsson) :
Frumvarp þetta fer fram á tvent: Í fyrsta lagi, að vegurinn milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sje tekinn í tölu flutningabrauta, og annað hitt, að honum sje haldið við á kostnað landssjóðs.
Nefndin hefir athugað málið og komist að þeirri niðurstöðu, að rjett sje að taka þennan veg í tölu flutningabrauta. Eins og háttv. flutnm. tók fram við 1. umræðu málsins, verður að gæta þess, að vegurinn er afarfjölfarinn. Umferðin er geysimikil, bæði af ríðandi mönnum og gangandi, vögnum og bifreiðum. Þetta er nefndinni kunnugt, enda er því greinilega lýst í brjefi sýslumannsins í Hafnarfirði, sem prentað er sem fylgiskjal með frumvarpinu og háttv. deildarmenn munu hafa kynt sjer. Þessi umferð er mest úr Reykjavík og Hafnarfirði, og miklu meiri en úr Gullbringu- og Kjósarsýslu. Það má og nú segja, að alt landið noti veginn, þar sem allir, er fara að Vífilsstöðum, fara um hann, og ber landssjóði fremur fyrir það að taka veginn á sína arma, enda virðist nefndinni að ekki verði hjá því komist.
Óskir Kjósar- og Gullbringusýslu um að vegurinn verði tekinn í tölu flutningabrauta, verða að teljast mjög eðlilegar,. þegar á það er litið, hvernig ástatt er.
Vegurinn liggur að eins yfir örlítinn rana af Kjósarsýslu, Kópavogsháls, og þessi litli spotti liggur þannig, að menn úr sýslunni virðast ekki hafa minstu ástæðu til að halda honum við, enda kemur það fram í því, að sýslunefndin í Kjósarsýslu. ákvað á fundi sínum 15. apríl síðastliðinn að láta þennan vegarkafla falla úr tölu sýsluvega sinna. Þegar litið er á hina miklu umferð um veg þennan og hina miklu þörf á því, að hjer sje góður vegur, þá virðist með öllu ófært, að hann sje látinn eyðileggjast. Hins vegar hafði sýslunefndin fullan rjett til að taka ákvörðun þá, sem hún tók, því að sýslunefnd er heimilt að ákveða, hvar sýsluvegir skuli liggja um sýslu sína. Það er því ekki hægt að þröngva sýslunefndinni í Kjósarsýslu til að halda við þessum vegarspotta_ Að því er snertir Gullbringusýslu, þá hefir hún ekki heldur mikil not af vegarspottanum, sem henni tilheyrir, það er að segja veginum frá Kópavogi suður að Hafnarfjarðarhrauni, en þó nokkru meiri en hin sýslan af sínum. Það er því mikið, sem með því mælir, að sú ósk sje tekin til greina, sem fram kom frá sýslufundi Gullbringusýslu 17. apríl síðastliðinn, að þessi vegur sje tekinn í tölu flutningabrauta. En einkum mælir það með beiðni þessari, að Gullbringusýsla hefir að undanförnu lagt afarmikið fje til sýsluvega sinna, svo mikið, að mjer sýnist, að fullerfitt muni verða fyrir sýsluna, að rísa undir þeirri byrði, sem hún, með þessu hefir lagt á sig. Sýslan skuldar nú fyrir vegagjörðir 48–49000 kr., og er líklegt að hún leggi fram á næstu árum mikið, fje til Grindavíkurvegarins. Það er því von, þó sýslubúum finnist nauðsyn bera til, að þessum vegkafla sje ljett af sýslunni.
Af þeim ástæðum, sem jeg hefi drepið á, mælir nefndin eindregið með því, að vegurinn milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sje tekinn upp í tölu flutningabrauta. Þó skal jeg bæta því við, að hjer er að eins átt við þann hluta vegarins, sem liggur fyrir utan lögsagnarumdæmi Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Land lögsagnarumdæmis Reykjavíkur nær suður að Fossvogi, og hefir Reykjavík sjeð um veginn þangað suður hingað til, og svo er ætlast til að verði framvegis. Hins vegar er nefndinni ekki fullkunnugt um, hvernig háttað er mörkum milli Gullbringusýslu og Hafnarfjarðarkaupstaðar, hvort þau eru við innri enda Hafnarfjarðarhrauns eða ekki; en nefndin mun afla sjer upplýsinga um það, áður en 3. umræða fer fram, og koma þá með nánari ákvarðanir um takmörk vegarkafla þess, sem tekinn verður í tölu flutningabrauta, ef henni þykir ástæða til. Hvað viðhaldskostnað brautarinnar snertir eftir að hún er komin upp, þá vill nefndin fara þar milliveg milli þess að landssjóður kosti alt viðhaldið og að sýslurnar gjöri það; hún leggur til að sýslurnar kosti viðhaldið að 2/3, en landssjóður að 1/3, og er það í samræmi við vegalögin frá 1907. Nefndin hefir í heild sinni ekki viljað fara lengra, þótt landssjóður kosti viðhald á einstöku flutningabrautum að öllu leyti, svo sem er með flutningabrautina frá Reykjavík austur yfir fjall samkvæmt lögum 11. maí 1911. Sömuleiðis hefir mjer verið sagt, að landssjóður kosti að öllu viðhald vegarins frá Geithálsi austur að Þingvöllum, en ekki er mjer kunnugt um, á hvaða lögum það byggist. Nokkuð gæti að vísu mælt með því, að áliti sumra nefndarmanna, að brautin milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar fengi sama rjett og þær, sem bestan hafa. Jeg bendi að eins á þetta; en eins og jeg tók fram, vildi nefndin ekki fara lengra en þetta, að landssjóður kostaði að 1/3 viðhald vegarins.