24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (2169)

51. mál, vegir

Framsögumaður (Jósef Björnsson):

Jeg benti á það í ræðu minni, að frv. ætti að skilja svo, að flutningabrautin ætti að byrja þar, sem land Reykjavíkur endaði og ná suður að landi Hafnarfjarðar. Til þess að þetta verði sem ljósast, þá mun nefndin koma með brtt., er skýrir þetta, ef hún telur þess þörf eftir að hafa athugað mátið nánar og leitað sjer upplýsinga samkvæmt bendingu hv. 3. kgk (Stgr. J.).