24.07.1914
Efri deild: 17. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (2170)
51. mál, vegir
Kristinn Daníelsson:
Jeg skal taka það fram viðvíkjandi því, hvaða kafla: ætlast er til að flutningabrautin nái yfir, að þeim skilningi á því, sem hv. frsm. (J. B.) hjelt fram, var og slegið föstum í hv. Nd., þegar málið lá þar fyrir í fyrra. Það mun því varla geta orðið undirorpið misskilninni, við hvað hjer sje átt; ræðurnar á báðum þingunum hljóta að taka af allan vafa um það, geti á annað borð verið um nokkurn vafa að ræða.
Jeg er þakklátur hv. meðnefndarmönnum mínum og öðrum hv. þdm. fyrir þær góðu undirtektir, sem frv. hefir fengið.
Jeg tek það fram, að það er óhjákvæmilegt, að vegi þessum sje haldið í góðu lagi; umferðin um hann er svo fádæmamikil, en hins vegar er það, eins og þegar hefir verið bent á, ofætlun fyrir sýslufjelögin, að standa straum af honum, enda ekki fullsanngjarnt að heimta það, þar sem þau hafa svo lítil not af honum í samanburði við aðra. Mjer hefði verið það langkærast að frv. væri samþ. óbreytt eins og það kom fyrst fram. Þó hefi jeg ekki komið fram með brtt., hversu kært sem mjer er það, að hv. þing sæi sjer fært að ákveða það, að landssjóður kostaði að öllu viðhald vegarspotta þessa, eins og viðhald vegarkafla þeirra, er hv. frsm. (J. B.) nefndi. Hjer stendur svo alveg sjerstaklega á, að mesta sanngirni mælir með, að svo væri gjört.
Framsm. (J, B.) gat þess, að Kjósarsýsla hefði þegar numið þann kaflann, sem henni heyrir til, úr tölu sýsluvega sinna. Jeg fæ því ekki sjeð, hver muni halda honum við, ef landssjóður tekur ekki að sjer alt viðhald hans, því að ekki verður hægt að skylda Kjósarsýslubúa til þess.
Er þá ekki eftir annað en vegarspottinn, sem heyrir til Gullbringusýslu, og eftir öllum málavöxtum og samkvæmt því, sem jeg skýrði frá við 1. umr. málsins, þá væri langeðlilegast að landssjóður tæki hann líka að sjer fyrir fult og alt. Hjer stendur svo sjerstaklega á, að varla getur komið til mála, að það mundi skapa hættulegt fordæmi. Jeg sætti mig þó að þessu sinni og eftir atvikum við þá niðurstöðu, sem nefndin hefir komist að, þótt mjer hefði þótt hitt æskilegast. Mundi jeg helst óska, að frv. væri samþ. óbreytt, en brtt. nefndarinnar feld.