27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (2172)
51. mál, vegir
Framsögumaður (Jósef Björnsson):
Í samræmi við það, sem til orða kom við síðustu umr., höfum við nefndarmenn athugað nánara orðun á frv. greininni, og höfum komið fram með þá brtt., að á eftir orðinu „Hafnarfjarðar“ bætist við „milli lögsagnarumdæmanna“. Þetta er að eins skýring á því, að þessi flutningabraut nær frá Fossvogi til Hafnarfjarðarhrauns. Hinn hluti veganna telst til bæjanna sjálfra. Hjer er því ekki um neina efnisbreytingu að ræða, heldur einungis orðabreytingu til skýringar.
Þá er enn fremur brtt. á þingskjali 222 frá hv. þm. Vestm. (K. E.). Um þá brtt. skal jeg ekki segja neitt að svo vöxnu máli, nema það, að nefndin hefir tekið hana til athugunar, en nefndin í heild sinni hefir ekki tekið neina afstöðu með henni eða móti.