14.07.1914
Neðri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

3. mál, undanþága vegna siglingalaganna

Framsögum. (Einar Arnórsson):

Eins og tekið var fram við 1. umr. þessa máls, er með þessu frumv. farið fram á það, að veitt sé undanþága frá ákvæði 1. gr. í siglingalögum frá 22. nóv. 1913. Undanþágan er í því fólgin, að 2 menn úr Vesturheimi megi sitja í stjórn Eimakipafélagsins, þótt þeir fullnægi ekki skilyrðum 1. gr. siglingalaganna um búsetu eða þegnrétt í veldi Danakonunga. Nefndin hefir komist að þeirri niðurstöðu, að frumvarpið beri að samþykkja óbreytt. Það kom til athugunar í nefndinni, hvort samþykt þessa frumvarps gæti ekki verið hættuleg, að því leyti, að hún gerði það að verkum, að skip Eimskipafélagsins gæti þá ekki siglt undir dönskum farfána. Þó varð nefndin sammála um það, að hér væri um mál að ræða, sem íslenzkt löggjafarvald hefði fullkomið forræði yfir.

Ef borin er saman 1. gr. dönsku og íslenzku siglingalaganna hér að lútandi, þá sést það, að íslenzk löggjöf hefir talið sér heimilt að setja önnur skilyrði en dönsku lögin í þessu efni, án þess að bagi hafi orðið að. Nefndin hefir látið prenta hér að lútandi ákvæði dönsku siglingalaganna, dönsku skipsskrásetningarlaganna og íslenzku siglingarlaganna og fylgir það með nefndarálitinu, sem fylgiskjal I.

Nefndin leggur því til að þetta frv. verði samþykt óbreytt.

Að endingu skal eg geta þess, að hv. ráðherra mæltist til þess. að nefndin athugaði, jafnframt frumvarpinu, ákvæðin um atkvæðamagn landssjóðs í samanburði við atkvæðamagn Vestur-Íslendinga á fundum Eimskipafélagsins. Nefndin hefir athugað þetta, en í því atriði er háttv. 1. þingm. Rvík. (Sv. B.) fram sögumaður.