14.07.1914
Neðri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

4. mál, mæling og skrásetning lóða

Frams.m. (Einar Arnórsson):

Niðurstaða sú, sem nefndin hefir komist að í máli þessu, gengur í þá átt, að breyta frv. í allmikilvægum atriðum, frá því sem það var, er það var lagt fyrir þingið.

Í frumv. var gert ráð fyrir að stofna gerðardóm um lóðaþrætur, en sá gerðardómur hafði ekki dómsvald, var ekki »judiciel«, heldur mátti skjóta málum frá honum fyrst og fremst til bæjarþingsins og síðan til yfirdómsins o s. frv. Nefndin hefir nú litið svo á, að það sé hagkvæmara, að stofna sérstakan dómstól, merkjadóm, er sé »judiciel«, og af þessu stafa flestar breyt.till. nefndarinnar við frumvarpið. Að vísu er ekki gert ráð fyrir því, að hann verði með sama sniði og landamerkjadómar núgildandi laga, en þó bygður á líkum meginreglum. Málum á að mega áfrýja frá honum beint til yfirdómsins á sama hátt sem dómum og úrskurðum héraðsdómara. En þar með er þó ekki sagt, að um þá áfrýjun gildi að öllu sömu reglur sem ella. Nefndin hefir einmitt talið rétt að gera ýmsar breytingar í því tilliti. Fyrir henni vakti, að það væri aðalatriðið, að mál þessi fengi sem fljótastan úrskurð og að flutningur þeirra yrði sem vafningaminstur. Og þess vegna leggur nefndin til að stytta alla fresti frá því sem gerist í einkamálum í héraði.

Þess gerist ekki þörf að svo komnu, að athuga hverja einstaka breytingu, sem nefndin hefir lagt til, að gerð verði á frv., enda geri eg ráð fyrir því, að einstakir þingmenn háttv. deildar hafi kynt sér þær. En ef eitthvað væri það í þeim, sem einhver þættist ekki skilja, þá munum vér nefndarmenn auðvitað reyna að skýra það betur. Vona eg svo, að háttv. deild taki málinu vel og komist að sömu niðurstöðu og nefndin.