14.07.1914
Neðri deild: 11. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (234)

4. mál, mæling og skrásetning lóða

Jón Magnússon :

Eg ætla að eins að spyrja háttv. þm. Dal. (B. J.) hvort hann geti bent á eitt einasta dæmi þess, að mál, sem héraðastjórn hefir leitað til þingsins um og snerta að eins héraðið, hafi gengið öðru visi en greiðlega gegn um þingið.