06.07.1914
Neðri deild: 4. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

16. mál, beitutekja

Flutningsm. (Matthías Ólafsson) :

Um þetta efni eru til lög áður frá 1905, en í þeim eru engin sektarákvæði. Hvort sem nú löggjafarvaldið hefir ekki búist við, að lögin yrði brotin eða ekki, þá hefir það oftsinnis komið í ljós, að mennirnir eru ekki eins góðir og þeir ætti að vera, og hafa lögin margsinnis verið brotin. Þetta frv. miðar að því fyrst og fremst að koma að sektarákvæðum um þetta efni. Lagt hefir verið fram á lestrarsalinn erindi frá Önfirðingum, þar sem farið er fram á þetta. En jafnframt hefi eg í frumv. lagt til að breyta 1. gr. laganna frá 1905, þannig, að gjaldið fyrir beitutekju verði 2 kr. í staðinn fyrir 1 kr. Það sjá allir, að 1 kr. er alt of lágt gjald, og 2 kr. raunar líka. Síðan skelfiskabeitan fór að tíðkast, hafa sjómenn, eftir að skelfiskurinn rýrnaði, gengið í netlög, að fornspurðum landeiganda, og skeyta ekkert um ákvæði 2.gr. laganna frá 1905.

Eg vona, að háttv. deild sjái, að þetta mál er nauðsynjamál, og að hér er ekki um svo gífurlegar upphæðir að ræða, að frv. geti ekki náð fram að ganga þess vegna.

Eg skal bæta því við, að ætlast er til þess, að sektirnar renni til hlutaðeigandi sveitarfélags, og óbrotin verði farið með sem venjuleg lögreglumál.