15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
16. mál, beitutekja
Framsögum. meiri hl. (Matthías Ólafsson):
Enn einu sinni þarf háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) að taka það fram, að verið sé að gera einni stétt rangt til, þótt henni sé ætlað að bæta yfirtroðslur sínar. Háttv. þm. getur ekki skafið út, að hann, sjálft yfirvaldið, heldur uppi vörnum fyrir ólöghlýðni og brotgirni. Hvort sú stétt, sem brotin fremur, er sjómannastétt eða önnur stétt, skiftir ekki máli, nema ef til vill þegar um það er að ræða að spilla fyrir þeim, sem eiga að sjá um hag þeirrar stéttar. En óhræddur er eg við dóm sjómannastéttarinnar og sé enga ástæðu til þess að skríða fyrir henni með því að halda uppi vörnum fyrir lögbrot hennar.
Háttv. þm. bjóst við því, að frumv. yrði samþykt; eg hefi líka þá trú á réttarmeðvitund háttv. þingmanna, að þeir aðhyllist frumvarpið heldur en skoðun háttv. þm. (G. E.), sem er óverjandi.