06.07.1914
Neðri deild: 4. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í B-deild Alþingistíðinda. (268)
10. mál, afnám fátækratíundar
Flutningsm. (Jóhann Eyjólfsson) :
Ef það eiga að vera andmæli gegn þessu frumvarpi, að um forngrip sé að ræða, þar sem tíundarlögin gömlu eru, þá vil eg segja það, að þeim eða minning þeirra ætti að vera vel borgið í skjalasafni landsins. Þar eiga slíkir gripir að geymast, en ekki starfrækja þá þjóðinni til skaða og minkunar. Það segir sig sjálft, að lögin geta ekki átt sér langan aldur héðan af, þar sem um bein rangindi er að ræða í þeim nú orðið. Aldurinn einn út af fyrir sig nægir ekki til að helga gildi þeirra. Það, sem gamalt er orðið og úrelt og ilt, verður að víkja fyrir hinu nýja og góða.
Að öðru leyti skal eg ekki orðlengja frekara um þetta nú. Eg treysti svo réttlætistilfinningu háttv. þingmanna, að þeir felli niður þetta rangláta gjald, sem kemur langþyngst niður á þeim mönnum, sem sárfátækastir eru.