01.07.1914
Efri deild: 1. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (3)

Deildarsetning efri deildar

Kristinn Daníelsson :

Jeg álít sjálfsagt að forseti skeri úr því, hvort fundi skuli frestað, því að jeg get ekki fallist á það, að hann hafi ekki vald til þess. Jeg get ekki sjeð, að hjer sje um þau afbrigði frá þingsköpunum að ræða, sem geri forseta óheimilt að fresta þessum fundi. Það geta komið fyrir þau tilfelli, að þetta hafi meiri þýðingu en það hefir nú, ef t. d. vantaði marga þingmenn, svo að þá væri sjálfsagt að fresta fundi.