09.07.1914
Neðri deild: 7. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (308)
14. mál, vörutollur
Bjarni Jónsson:
Eg er því meðmæltur, að nefnd verði kosin í þetta mál. Þó að þessi breyting, sem hér er stungið upp á, sé sjálfsögð, þá getur svo verið um fleiri og rétt er að athuga það. Svo væri það kannske ekki úr vegi, að nefnd reyndi að finna þennan grundvöll, sem háttv. 1. þm. G.-K. (B. gr.) var að tala um og enginn hefir getað fundið enn þá — nema ef hann væri sá, að draga peninga úr vösum landsmanna með ranglátum og vitlausum lögum. Raunar var þeim grundvelli raskað í fyrra, því að þá vóru gerðar nokkrar breytingar, sem draga úr aflanum. Þetta er rétt að athuga. Líka ber þess að gæta, að menn vilja kannske koma fram með nýtt frumvarp og þá mundi nefndarskipun spara tíma.
»Það skal vel vanda, sem lengi á að standa«. Þessi lög hafa nú staðið frá því þau vóru samþykt fyrst á þinginu í hitt eð fyrra og áttu að standa til þriggja ára. Nú — þeim var ekki breytt fyrr en á næsta þingi eftir að þau vóru samþykt. Síðan hafa þau staðið óbreytt þangað til þetta þing, sem er næsta þing á eftir, ætlar nú að breyta þeim til ársloka.
Það ætti að sýna hversu vel er frá lögunum gengið og hve góð þau eru.