09.07.1914
Neðri deild: 7. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (309)
14. mál, vörutollur
Flutningsm. (Pétur Jónsson):
Það er gott að heyra, að háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) ætlar að taka að sér það hlutverk, að líta eftir því, ef menn komast í mótsagnir við sjálfa sig. En þessi mótsögn, sem hann var að tala um hjá mér, held eg að sé meira tilsýndar en í raun og veru. Þessi lög eru alla annars eðlis en lögin, sem við vórum að tala um í gær. Vörutollslögin eru ekki almenn lagasetning, eins og lögin um bjargráðasjóð, og hlíta því ekki sömu reglum að því er breytingar á þeim snertir. Vörutollslögin eru ætluð til bráðabyrgða og skamms tíma. Komi því fram einhver sá galli á lögunum, sem veldur skaða, þá þarf að bæta úr honum strax. Og þessi galli, sem hér á að bæta úr, er til kominn fyrir atvik, sem höfundur upphaflega frumvarpsins, háttv. 1. þm. G.-K. (B. gr.), sagði, að hann mundi hafa tekið til greina, ef sér hefði dottið hann í hug fyrirfram.
Ef á að fara að kjósa nefnd í þetta mál, þá er með því öðrum þingm. gefið undir fótinn með að fara að bjástra við sjálfan grundvöll laganna, — en það gæti verið óheppilegt, og þá er komin fram mótsögn við það, sem eg hélt fram í gær.
Hér er að eina um fjárhagslegt atriði að ræða sem getur bakað landssjóði og landsmönnum peningatjón, og því verður að bæta úr. Og við hefðum alls ekki komið fram með frumv., ef að eins hefði verið að ræða um kjöt og fisk, af því það er smávægilegra heldur en um síldina.