11.07.1914
Neðri deild: 9. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

14. mál, vörutollur

Guðm. Eggerz:

Mér þykir það undarlegt, að háttv. þingmönnum skuli ekki geta skilist það, að innlenda bátasmíð er ekki hægt að efla með ákvæði núgildandi tolllaga. Úr því að þessi háa »fragt«, 700 kr., gerir það ekki, þá gerir tollurinn það ekki. Til þess þyrfti þá að hækka tollinn til muna. Ef þetta gæti orðið til þess að styðja innlenda bátasmið, þá léti eg það vera, en reynslan hefir sýnt, að svo er ekki, og því er ákvæðið ósanngjarnt.

Eg vil ennfremur biðja menn að athuga það, að fleiri báta fáum vér frá útlöndum en mótorbáta. Mér er sagt af mönnum, sem vit hafa á, að mótorbátasmíð sé ekki vandasöm, en færeyskir bátar verði ekki smíðaðir hér; þá þurfum vér að fá frá útlöndum.

Eins og eg tók fram áðan, er full þörf á því að athuga, hvernig stutt verði að innlendri bátasmið. En því er eg mótfallinn, að lagður sé tollur á eingöngu til þess að íþyngja sjómannastéttinni. Gjöldin, sem á þeirri stétt hvíla, virðist nógu mikil, og nú er enn á þessu þingi farið fram á að hækka iðgjöldin til líftryggingarsjóðsina, sem allar líkur eru til að verði samþ.

Háttv. þm. Ak. (M. gr.) sagði, að þetta atriði hefði verið athugað svo vel á síðasta þingi, að óviðurkvæmilegt væri að breyta lögunum nú. En var þá ekki jafnóviðurkvæmilegt í fyrra að breyta lögum frá þinginu næst á undan, að sjálfsögðu jafnvel athuguðum ?

Eg veit, að sjómenn mundu taka því þakklátlega, að þessu gjaldi væri af létt og lögunum breytt í sama horf sem áður var. Eins og eg hefi tekið fram er fragtin mjög há. Þar við bætist þessi tollur, 50–60 kr., auk tolls af vélunum. Þetta er tilfinnanlegt.