10.07.1914
Neðri deild: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

25. mál, dómtúlkar og skjalþýðendur

Flutningsm. (Bjarni Jónsson) :

Eg bar þetta frumvarp fram á þingi í fyrra, og gekk það þá í gegn um neðri deild, og mátti kalla, að það fengi þar góða meðferð. — Eg vona að það sé öllum ljóst, án þess að eg þurfi að halda langa ræðu, að það er nauðsynlegt í þessu landi eins og öðrum, að til sé einhverjir menn, sem geti lagt út skjöl og verið túlkar við réttarhöld, með þeirri tiltrú, sem allar þjóðir bera til eiðfestra þýðenda (translatora).

Vil eg því að eins óska, að skipuð verði 5 manna nefnd til þess að athuga málið, og að því verði vísað til 2. umræðu.