17.07.1914
Neðri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

25. mál, dómtúlkar og skjalþýðendur

Framsögum. (Bjarni Jónsson); Eg fekk tækifæri til þess við 1. umr., að geta þess, hver nauðsyn það væri hverri þjóð, að eiga sín á meðal menn þá, er hér ræðir um. Nefndin hefir nú fallist á þá skoðun, og leggur hún til að frumvarpið verði samþykt með þeim breyt.till., er hún hefir komið fram með á þskj. 100. Þær eru ekki stórvægilegar, en þó til bóta, það sem það er. Þar er gerð sú leiðrétting, að mennirnir eiga ekki að vinna eið, heldur heita því við drengskap sinn, að vinna verk sitt eftir beztu vitund og ljósta eigi upp leyndarmálum. — Þá er þar og ákvæði, er tekur nánara til, hvaðan þeim mönnum skuli koma kaup sitt, er stjórnin setur til þess að dæma um hæfileika þeirra, er bjóðast til þessa starfa. Eg hafði ætlað, að það lægi í hlutarins eðli, en það þótti ónákvæmni að taka það ekki sérstaklega fram. Enn fremur þótti nefndinni rétt að marka þessum mönnum stað í hegningarlögunum, ef þeir gerðist brotlegir, sem sé að þeir skyldi sæta sömu viðurlögum, sem sýslunarmenn alment.

Eg held að eg þurfi svo ekki að fjölyrða meira um þetta mál. Eg vona að það nái óhindrað fram að ganga.