10.07.1914
Neðri deild: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (340)
38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík
Flutningsm. (Sveinn Björnsson):
Það má segja sama um þetta mál og þau tvö síðustu. Það var til meðferðar hér á þinginu í fyrra og gekk greiðlega í gegnum þessa deild, en fekk ekki líf í efri deild. Það er nú í nákvæmlega sama formi og í fyrra, að undantekinni einni smábreytingu. Það er nú lagt til að bæjarstjórn kjósi sér forseta úr flokki bæjarfulltrúanna. Þetta er mjög lítilfjörleg breyting, en myndi vera heppileg. Eg hefi á bæjarstjórnarfundum tekið eftir því, að það er mjög óheppilegt, að borgarstjóri sé jafnframt fundarstjóri. Ef eg mætti taka dæmi til að sýna fram á þetta, lægi næst að jafna því saman við, að ráðherra stjórnaði fundum hér í deildinni. Borgarstjóri þarf að taka til máls í næstum því hverju máli og þarf oft og tíðum að standa fyrir máli sínu. Eg verð því að telja það mjög heppilega ráðstöfun að losa borgarstjóra við fundarstjórastörfin.
Eg vona, að þessi litla breyting verði ekki til að hefta framgang málsins.
Eins og kunnugt er, hafa allir þingmálafundir, sem hér hafa verið haldnir á síðari árum, samþykt að borgarar bæjarins skuli kjósa borgarstjóra. Tillögur um þetta mál hafa venjulega verið samþyktar í einu hljóði, og aldrei hefir verið hreyft andmælum gegn því. Það mun hafa verið tekið tillit til þessa hér í neðri deild í fyrra og málið því fengið svo góðar undirtektir hér þá, enda liggur hér fyrir óvanalega sterkur vilji kjósenda.
Á þingmálafundi, sem haldinn var fyrir þennan bæ, nú rétt fyrir þing, kom fram tillaga um þetta mál, sem fór í sömu átt og þetta frumvarp; hún var samþykt í einu hljóði eða svo að segja.
Það mun hafa verið tilgangurinn með lagabreytingunni 1907, að gefa Reykjavík meiri sjálfstjórn en áður. Sú sjálfstjórn er ekki fullkomin, meðan borgarar bæjarins fá ekki að kjósa sér borgarstjóra.
Eg finn ekki ástæðu til að tala frekara um málið að þessu sinni, en vænti þess, að deildin taki vel á móti frumv. og leyfi því að ganga fram.
Eg álít málið vel undirbúið og sting því ekki upp á nefnd, en mælist til að það fái að ganga fram nefndarlaust.