11.08.1914
Neðri deild: 40. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

120. mál, stjórnarskrá

Benedikt Sveinsson :

Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) sagði, að ekki væri hægt að liggja nefndinni á hálsi fyrir það, að hún hefði setið lengi að störfum sínum. Eg sakaði ekki nefndina um það, að hún hefði unnið lítið meðan ráðherra var í utanför einni, en það er nú orðið all-langt síðan hann kom heim. Það sýnir, að hér er um allmikið vandamál að ræða og þingmenn eiga heimtingu á að fá ráðrúm til þess að átta sig á þessum fyrirvörum, sem nefndin hefir verið svona lengi að sjóða saman og hefir þó ekki getað orðið sammála um. Menn verða að fá tíma til þess að átta sig vel á málinu, svo að þeir geti gert það, sem rétt er, því að það kostar mikið að gera rangt í slíku máli. Og þá er betra að hafa »status quo« en að spilla nokkru. Eg veit það, að málið hefir dregist nokkuð vegna utanfarar ráðherra og ófriðaröldu þeirrar, er risið hefir í Norðurálfunni. Hugir manna hafa dregist að þeim stórtíðindum, sem yfir dynja. Þetta hefir bæði valdið nefndinni töfum og eins öðrum þingmönnum. En það tjáir ekki að koma nú á eftir með það, að málið sé svo auðvelt orðið alt í einu, að þingmenn þurfi engan tíma til þess að íhuga það.

Þótt menn hafi verið kosnir til þings með stjórnarskrármálið fyrir augum, þá eru margar upplýsingar komnar í málinu síðan fyrir kosningar. Og það virðist svo, sem þær hafi komið ruglingi á skoðanir margra, jafnvel t. d. hv. þm. Dal. (B. J.) og háttv. framsögumanns (E. A.). Og sundrungin öll, sem verið hefir í nefndinni alt til þessa dags, sýnir bezt, að það er ekki hlaupið að því að átta sig í fljótu bragði á málinu. Eg kunni betur við, að taka þetta fram við þessa umr. stjórnarskrármálsins, en á sjálfa fyrirvarana mun eg minnast síðar, er þeir koma hér til umræðu síðar í dag.