16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í B-deild Alþingistíðinda. (361)

41. mál, sjódómar og réttarfar í sjómálum

Flutningsm. (Sveinn Björnsson) :

Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) verð að fyrirgefa, þó að eg skilji ekki hvað hann er að fara. Hann fullyrðir, að hér sé til menn, sem eg hefi upplýst, samkvæmt reynslunni, að hér eru alls ekki til. Hann staðhæfir, að hér sé nóg af siglingafróðum mönnum, sem jafnframt hafi fullkomna sérþekkingu á vélum, vöruflutningum, vátryggingarmálefnum og öðru, sem nefnt er í sjódómslögunum. Þó að eg viti nú, hvað mikið er hæft í þessu, þá tjáir mér líklega ekki að deila við dómarann. En ef háttv. þm. (M.Ó.) gæti nefnt nöfn, þá kynni að vera að mér skildist þetta eitthvað betur. Í vetur þegar átti að tilnefna menn í sjódóm hér í Reykjavík, þá var eg einn þeirra manna, sem kosinn var í bæjarstj. í nefnd, sem um þetta átti að fjalla. Nefndin bar sig saman við bæjarfógetann og ýmsa aðra, og niðurstaðan varð sú, að meðal siglingafróðra manna væri ekki unt að fá þá menn, er jafnframt hefði sérþekkingu á þeim öðrum greinum, er sjódómslögin heimta.