13.07.1914
Neðri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

47. mál, umboðsstjórn Íslands

Jón Jónsson:

Mér virðist þetta mál vera harla mikilsvert, og er eg eindregið þeirrar skoðunar, að nauðsyn beri til að afnema ráðherraeftirlaunin. Þetta mál hefir áður legið fyrir þinginu, en ekki náð fram að ganga. Hefir því verið haldið fram, að ef eftirlaunin yrði afnumin, myndi ráðherra fremur sitja í trássi við vilja meiri hluta þings og þjóðar, og var það upphaflega talin ein helzta ástæðan með því að veita ráðherra eftirlaun, að hann hefði þá enga freistingu til slíks. Eg tel það sjálfsagt, að ráðherra viki frá völdum, þegar hann hefir ekki lengur traust meiri hl. þingsins, enda er það þegar orðin venja. Í ráðherrastöðuna munu venjulegast veljast menn, sem ekki eru í neinum fjárhagslegum kröggum og geta lifað eins góðu lífi þótt þeir sleppi embættinu. Munu það fyrst um sinn venjulegast verða sýslumenn, eða lögfræðingar, sem gæti sezt í sín fyrri embætti aftur. Það er mjög hættulegt, ef sú venja kemst á, að ungir menn, sem komist hafa í ráðherrastöðu, en verða von bráðar að sleppa henni, setjist í helgan stein og geri ekki neitt. En með það finst mér ráðherra vera gefið undir fótinn með eftirlaununum, því að vel má lifa af 3000 krónum án þess að þurfa að hafa nokkurt starf á hendi. Þetta getur líka orðið stórt fjárhagsspursmál fyrir landið, sérstaklega ef ráðherrum fjölgar, eins og við má búast að verði, og verður þá ekki lengi að safnast í drjúga fúlgu, ef þeir verða margir á tiltölulega stuttum tíma, sem rétt öðlast til svo hárra eftirlauna. Vitanlega er þetta mál töluvert áhugamál þjóðarinnar, og getur það naumast gengið að kveða niður þær raddir, sem krefjast afnáms þessarra eftirlauna. Þær raddir eru á seinustu tímum orðnar ærið háværar hjá þjóðinni, og enginn getur með réttu neitað því, að þær sé sanngjarnar.