13.07.1914
Neðri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

47. mál, umboðsstjórn Íslands

Björn Hallsson:

Eg skal vera stuttorður. Það þekkja allir hvaða skoðun almenningur hefir á eftirlaununum yfirleitt. gröfurnar um að afnema öll eftirlaun eru orðnar allháværar hjá þjóðinni, en stjórnarskráin hefir ataðið í vegi fyrir því, að það væri hægt, þótt þingið féllist á það. Nú má búast við, að stjórnarskrárbreyting gangi í gildi, og er þetta frv. bygt á því.

Vér flutningsmennirnir tókum ekki stökkið svo stórt, að fara fram á afnám allra eftirlauna, vegna þess að það mál er ekki nægilega undirbúið. En vér hefðum helzt viljað geta afnumið eftirlaun þess ráðherra, sem nú tekur við, en sáum að það var ekki hægt, vegna ákvæða núgildandi stjórnarskrár. — Eg get ekki annað séð, en að ráðherraembættið sé fullsómasamlega launað, svo ekki þurfi að láta eftirlaun fylgja því. Það er líka skoðun manna úti um land, að eftirlaunin sé til þess, að menn sækist eftir ráðherraembættinu um of þeirra vegna, og verði þannig til að efla valdafíkn og flokkadrátt í landinu. Það sýnist því fullkomlega vera tími til kominn að kippa þessu í lag. Auk þess liggur í loftinu fjölgun ráðherra, og verður peningaspuramálið fyrir landið því meira, eftir því sem fleiri menn öðlast rétt til eftirlaunanna. Það hefir komið fram brt., þar sem gert er ráð fyrir, að ráðherra hafi eftirlaun í 3 ár. Eg get ekki í fljótu bragði aðhylst þessa tillögu, og álít rétt að taka sporið í einu, svo að þjóðin þurfi ekki að segja, að þessi eftirlaun sé til spillingar. Eg get heldur ekki skilið, að vér getum ekki fengið hæfa menn til að gegna þessu embætti, þótt eftirlaunin yrði afnumin.