24.07.1914
Neðri deild: 20. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

55. mál, vörutollur

Magnús Kristjánsson:

Eg hefi litla ástæðu til að standa upp, enda skal eg ekki tala langt. Eg skal þá hafa sömu aðferð, sem háttv. framsögum. (B. Kr.) og byrja þar sem hann hætti.

Hann sagði, að það væri ekki á færi þingmanna, að endurskoða vörutollslögin, og skal eg kannast við, að hann hefir nokkuð til síns máls. En þetta sannar einmitt það, sem eg held fram, að réttara sé að láta breytingar á lögunum bíða næsta þings, enda þetta frumv. ekki til bóta.

Háttv. framsögum. (B. Kr.) þóttist sýna fram á, að ástæður mínar gegn frumv. þessu væri rakalitlar, vegna þess að gjaldið væri ekki hækkað að mun með frumv. Þetta er ekki rétt hjá háttv. þm., því að aðalbreytingar frumv. miða að því, að hækka gjaldið af nauðsynjavörum, en ekki lækka.

Háttv. framsögum. (B. Kr.) hélt því fram, að þegar lögin hefði verið samin, þá hefði verið tekið hæfilegt tillit til alls, sem eg sagði. Þetta er ekki rétt. Aðaláherzlan var lögð á það, að gera innheimtuna sem auðveldasta. En það er fleira, sem athuga þarf, en innheimtan ein. Það er eitt aðalatriði, sem gerir lögin óheppileg, en það er, að með þeim eru lagðar miklu þyngri kvaðir á þann hluta þjóðarinnar, sem sízt getur þolað þung gjöld og skatta. Þetta gjald hvílir langþyngst á fátæklingunum, og það á vörum, sem þeir geta alls ekki neitað sér um. Þetta er því tilfinnanlegra, sem of langt hefir verið gengið að þessu leyti í sumum öðrum lögum, t. d. sóknargjaldslögunum. Þetta er mjög athugavert atriði. Það sjá allir, hver fjarstæða það er, að fátæklingur, sem kaupir ódýr fataefni, skuli þurfa að greiða sama vörutoll, sem konur heldri manna greiða af silki, það er sem sé sami tollur af silki sem af ódýrri vefnaðarvöru. Gjaldið ætti að miðast við verðmæti vörunnar, og sú stefna, sem fram kom á þinginu 1912, en varð undir fyrir vörutollslögunum, nfl. að leggja hundraðsgjald á eftir verðmæti, hún var langtum réttari og eðlilegri. Eg býst því ekki við að nokkurn undri, þótt eg sé andstæður þessum lögum, vörutollslögunum, og eins því, að verið sé að hringla með þau og breyta til hins lakara.

Háttv. framsögum. (B. Kr.) sagði enn fremur, að eg hefði tekið of djúpt í árinni, er eg mintist á umkvartanir manna yfir lögunum, og vildi hann sanna það með því, að stjórnarfrumv. á síðasta þingi hefði verið svo stutt og farið fram á fáar breytingar. Það er rétt, að í stjórnarfrumv. vóru ekki taldar upp margar vörutegundir, en það er skiljanlegt, að stjórnarráðið hafi ekki viljað ganga langt í þessu, því að það hefir ekki viljað skerða tekjur landssjóðsins til muna, og hins vegar búist við, að þingmenn víðs vegar af landinu mundi koma fram með þær breytingartillögur, sem þeir teldi nauðsynlegar, enda kom það á daginn við meðferð þingsins á málinu. Þessi sönnun hans er því ekki á marga fiska.

Þá veik sami háttv. þm. (B. Kr.) að því, að það væri ósamkvæmni hjá mér að vilja tolla báta, sem smíðaðir væri í útlöndum. Það er í rauninni ekki ástæða til að svara þessu atriði nú, því að eg hefi áður í umræðum hér lýst skoðun minni á því. Eg færði þá rök að því, að útlend bátasmíð kepti við innlendan iðnað, auk þess sem útlendir bátar væri dýrari, ónýtari og ætti verr við en innlendir bátar.

Eg skal svo ekki orðlengja frekara um málið.